- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Flugvirki á fertugsaldri segist þurfa að borga 64 milljónum meira gangi hann að úrræðum Landsbankans fyrir skuldsett heimili. Hann tók lán fyrir þremur árum síðan í yenum þegar hann byggði sjálfu einbýlishús í Reykjavík. Upphaflega tók hann 29 milljón króna lán að eigin sögn en eftir hrun er það komið upp í 66 milljónir rúmar.
„Það er verið að plata fólk," segir flugvirkinn sem vill ekki koma fram undir nafni þar sem hann vill ekki opinbera eigin skuldastöðu og hlífa fjölskyldu sinni við umræðunni. Hann segist hafa skoðað þau úrræði sem finna má hjá Landsbanka Íslands, þaðan sem hann tók lánið, og komist að því að fallist hann á það sem er í boði þá þarf hann að lokum að borga 145 milljónir fyrir lánið.
„Lánið fór í Greiðslujöfnun sem er öllum til boða," segir flugvirkinn og bætir við: „Ég greiði því svipað og fyrir hrun á mánuði eða um 170 þúsund krónur. Það er tengt greiðslujöfnunarvísitölu. Ef ég held mig við þann kost og klára lánstímann og 3 ára þak lánsins sem er í lögum í dag, þá enda ég á að greiða til baka 81 milljón krónur nema kjör á íslandi og krónan Breytist eitthvað stórlega."
Hann segir málin hinsvegar flækjast og sýna heldur verri mynd ákveði hann að taka tilboði bankans um að fella niður 25 prósent af höfuðstól lánsins og breyta því í íslenskt lán.
„þá eru niðurstöðurnar hrikalegar," segir flugvirkinn sem reiknaði út á vef Landsbankans að ef lánið er óverðtryggt og íslenskt, þá standi það í rétt tæpum fimmtíu milljónum. Sé lánið með 7 prósent vöxtum þá gera afborganir 379 þúsund krónur á mánuði og lánið stendur að lokum í tæplega 146 milljónum króna.
Ef lánið er verðtryggt með 2 prósentu verðbólgu og vextir 4,8 prósent, þá endar lánið í 162 milljónum króna. Mánaðarlegar afborganir verða þá 248 þúsund krónur.
„Þannig að ef ég tek óverðtryggt lán og niðurfellingu þá mun ég enda á að borga 64 milljónir meira en ég þarf að gera í þeirri stöðu sem ég er í núna," segir flugvirkinn sem hvetur fólk til þess að stökkva ekki athugunarlaust á þau úrræði sem bankinn býður upp á varðandi niðurfellingu eða breytingu yfir í íslenska mynt.
„Það er bara verið að bjóða fólki snöruna," segir flugvirkinn sem líst illa á þróun mála.
Við þetta má bæta að Hagsmunasamtök heimilanna og samtökin Nýtt Ísland halda kröfufund á Austurvelli klukkan þrjú í dag.
Íţróttaálfurinn sjálfur, Magnús Scheving, hefur faliđ blađafulltrúa sínum í Bretlandi ađ b...
Í nótt sem leiđ var brotist inn í 7 bifreiđar viđ Leynisbrún, Suđurvör og Stađarhraun í Gr...
Aldrei í sögunni hefur fengist eins hátt verđ fyrir grásleppuhrogn og nú og hefur verđiđ h...
Níu starfsmenn hjá utanríkisráđuneytinu starfa ţar međ sendiherratitil og ţiggja laun samk...
Vegna frétta um meintan ólöglegan útflutning á hvalaafurđum hefur sjávarútvegs- og landbún...
Íslenskur karlmađur lést í vikunni af völdum áverka sem hann hlaut eftir ađ hann féll niđu...
Fundi samninganefndar flugvirkja og viđsemjenda ţeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk á fimmta...
Engin hefur enn veriđ handtekinn eđa yfirheyrđur vegna spellvirkjanna sem unnin voru á fja...
Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu var vígt viđ Bođaţing í Kópavogi á dag. Rúm átta ár eru sí...
Kristín Völundardóttir, sýslumađur á Ísafirđi og lögreglustjóri Vestfjarđa, hefur veriđ sk...
Brot 38 ökumanna voru mynduđ á Vífilsstađavegi í Garđabć í gćr. Fylgst var međ ökutćkjum s...
Ţjónustusamningur milli Krabbameinsfélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um skipulagđa...
Hluta af Laugavegi og Skólavörđustíg ásamt Bankastrćti verđur breytt í göngugötur um helgi...
„Ţetta var vinsamlegur fundur. Viđ rćddum viđ ráđherrann og upplýstum hann um stöđu mála. ...
Lögreglan á Suđurnesjum lýsir eftir Natalíu Rós Jósepsdóttur. Natalía strauk frá međferđar...
Fjarskipti viđ umheiminn hefđu getađ lamast ađ miklu leyti ef búnađur skemmdarva...
Af ţeim flokkum sem eru á ţingi, hvađa tveggja flokka ríkisstjórn myndir ţú styđja?