Bullspár um bráđnun jökla

Vísir Erlent 18. janúar 2010 14:52
Hverfa ekki alveg strax.
Hverfa ekki alveg strax.
Óli Tynes skrifar:

Fullyrðingar Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna um að jöklar Himalayafjalla verði að mestu horfnir árið 2035 eða jafnvel fyrr eru á byggðar á furðulegum misskilningi og vísindalegum mistökum að sögn vefsíðu breska blaðsins The Times.

Tvö ár eru síðan Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna setti fram þessa geigvænlegu spá. Þetta er sama nefndin og stóð fyrir Loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn á dögunum. Því var haldið fram að spáin væri byggð á nýjustu og ítarlegustu rannsóknum sem fyrir lægju um loftslagsbreytingar.

Þetta var kallað tímamótaspá sem tæki af allan vafa um hlýnun jarðar af mannavöldum.

Nú hefur komið í ljós að í raun var spáin byggð á stuttu símtali sem blaðamaður á tímaritinu New Scientist átti við lítt þekktan indverskan vísindamann fyrir níu árum. New Scientist er tímarit um tækni og vísindi fyrir almenning.

Indverski vísindamaðurinn Syed Hasnian hefur viðurkennt að hann hafi aðeins verið með vangaveltur um bráðnun jöklanna. Engar formlegar rannsóknir hafi legið þar að baki.

Erfitt er að útskýra hvernig í ósköpunum Loftslagsnefndin ákvað allt í einu að taka þessu sem heilögum sannleika.

Rétt er að geta þess að jöklafræðingar tóku spá Loftslagsnefndarinnar með mikilli vantrú á sínum tíma. Hún varðist hinsvegar með kjafti og klóm.

Rajendra Pachauri formaður nefndarinnar kallaði gagnrýni á spána „voodoo vísindi". Þegar umhverfisráðherra Indlands lýsti efasemdum um spána sagði Pachairi að það lýsti miklum hroka.

The Times telur líklegt að að minnsta kosti Himalaya-hluti heimsendaspárinnar verði dreginn til baka.





Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 21. maí. 2012 09:23

Strauss-Kahn bendlađur viđ hópnauđgun í Bandaríkjunum

Franska lögreglan hefur nú hafiđ formlega rannsókn á ţví hvort Dominique Strauss-Kahn, fyr...  

Meira
Erlent 21. maí. 2012 09:08

Seldi Ólympíukyndil á 30 milljónir

Ólympíukyndill sem notađur var í fyrsta hluta bođhlaupsins um Bretland í undanfara Ólympíu...  

Meira
Erlent 21. maí. 2012 09:02

Milljónir fylgdust međ hringmyrkva

Milljónir manna í löndunum viđ Kyrrahaf fylgdust međ sólmyrkva, eđa svokölluđum hringmyrkv...  

Meira
Erlent 21. maí. 2012 09:13

Barist í Beirút

Ađ minnsta kosti tveir féllu og um tuttugu liggja sárir eftir bardaga í Beirút höfuđborg L...  

Meira
Erlent 21. maí. 2012 09:11

Cameron setur Grikkjum úrslitakosti

David Cameron forsćtisráđherra Breta sendi Grikkjum tóninn frá leiđtogafundi Nato ríkja se...  

Meira
Erlent 21. maí. 2012 09:04

Kínverskum sjómönnum sleppt

Tuttugu og níu kínverskum sjómönnum hefur veriđ sleppt úr gíslingu en ţeir voru teknir til...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 23:56

Robin Gibb látinn

Robin Gibb, söngvari Bee Gees, lést í dag. Hann var 62 ára gamall. Gibb hafđi háđ langa ba...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 22:32

Heimkvađning hermanna hluti af áćtlun NATO

Anders Fogh Rasmussen, framkvćmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir ađ sú ákvörđun Holl...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 15:53

Stúlkan fékk nafniđ Aţena Margrét Francoise María

Dóttir Jóakims Danaprins og Maríu prinsessu heitir Aţena Margrét Francoise María en hún va...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 16:33

Mannfall í Sýrlandi - 20 fallnir

Ađ minnsta kosti 20 hafa falliđ í átökum andspyrnumanna og stjórnarhersins í Sýrlandi í da...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 12:53

Gríđarleg öryggisgćsla í Chicago - Össur og Jóhanna á stađnum

Gríđarleg öryggisgćsla er í Chicago-borg ţar sem leiđtogar Nato-ríkjanna er komnir saman, ...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 12:05

Mikil spenna yfir nafninu

Dóttir Jóakims Danaprins og Maríu prinsessu verđur skírđ í Mögeltönder kirkju í Danmörku í...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 12:01

Öflugur jarđskjálfti á Ítalíu - sex látnir

Ađ minnsta kosti sex eru látnir og fimmtíu slasađir eftir ađ snarpur jarđskjálfti reiđ yfi...  

Meira
Erlent 20. maí. 2012 07:30

Sjúkir ítrekađ ólađir niđur

Sjúklingar á geđdeildum í Svíţjóđ voru ólađir niđur í yfir 3.300 skipti í fyrra....  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / Bullspár um bráđnun jökla