- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Jón Gnarr leikari og skáld hefur verið valinn leikskáld Borgarleikhússins úr stórum hópi umsækjanda. Jón mun starfa í Borgarleikhúsinu næsta árið þar sem hann mun sinna ritstörfum fyrir leikhúsið.
Markmið með ráðningu leikskálds á vegum Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur er að laða hæfileikaríkt fólk að leikhúsinu, kynna því leikhúsformið og efla þannig íslenska leikritun, að fram kemur í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.
Úr umsögn dómnefndar: „Jón Gnarr hefur sýnt það og sannað með verkum sínum að hann er snjall penni sem hefur gott næmi fyrir samtalsforminu og persónusköpun. Þó húmorinn sé gjarnan í forgrunni er alvaran aldrei langt undan. Það er mikill fengur að fá þennan reynda listamann til liðs við leikhúsið."
Stefnt er að því að Jón riti leikverk, eitt eða fleiri, á tímabilinu með uppsetningu í Borgarleikhúsinu í huga. Leikskáldið verður hluti af starfsliði hússins allt tímabilið og fær aðgang að allri starfsemi leikhússins. Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur réð fyrsta leikskáldið, Auði Jónsdóttur rithöfund, í upphafi ársins 2009 og er hún því að ljúka sínum árssamningi. Stefnt er að uppsetningu á nýju leikriti Auðar á næsta leikári.
Formaður stjórnar Leikritunarsjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur. Aðrir í stjórn eru Brynjólfur Bjarnason og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri.
„Þetta er fáránlegt. Ég er ekkert smá reið,“ segir Anna Vallý Baldursdóttir sem komst að þ...
Norðurlöndin eru reiðubúin til þess að hjálpa Íslandi út úr efnahagskreppunni. Það er þau ...
Þótt ekki hafi veirð sérstaklega mikill snjór á Gjabakkavegi sinntu félagar í björgunarsve...
Það skiptir mjög miklu máli að Borgin ekki síður en aðrir aðilar sem standa að innheimtu h...
Félag flugumferðastjóra hafa aflýst verkfalli sem átti að hefjast á morgun klukkan sjö. Fu...
Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í ár. Þau voru afhent ...
Eldur kom upp í Skoda bifreið sem var á leið um Mosfellsdalinn um sjöleytið í kvöld. Að sö...
Fimm milljón króna reikningur Sjúktatrygginga Íslands er í vanskilum við Barnaspítalann í ...
Verkfalli flugumferðastjóra var frestað í ljósi fyrirheits ríkisstjórnarinnar um að viðræð...
Áður en tilkynnt var að flugumferðastjórar myndu aflýsa verkfalli sendi BSRB frá sér álykt...
Lög verða sett á deilu flugumferðarstjóra við Flugstoðir til að koma í veg fyrir fjögurra ...
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Lene Espersen utanríkisráðherra...
Í dag eru 20 ár liðin síðan að litháíska þingið samþykkti sjálfstæðisyfirlýsingu landsins....
Deloitte endurskoðun gerir engar athugasemdir við notkun starfsmanna VR á greiðslukortum s...
Flugumferðarstjórar hafa setið á fundum með viðsemjendum síðan klukkan eitt í dag. Hlé var...
Á að banna verkfall flugumferðastjóra með lagasetningu?