- Forsíđa
- Fréttir
- Viđskipti
- Íţróttir
- Lífiđ
- Umrćđan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiđlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Piltarnir tveir sem slógust í myndbandi sem Vísir sagði frá í gær gáfu sig fram til lögreglunnar í gær í fylgd feðra sinna. Þar útskýrðu þeir myndbandið þannig að þeir hefðu sett það á svið sér til gamans. Barnaverndarnefnd og skólayfirvöld í Keflavík hafa tekið á málinu að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.
Vísir greindi frá því í gær að gróft og niðurlægjandi myndskeið mætti finna á vefsíðunni Youtube af íslenskum unglingum að misþyrma öðrum pilt. Myndbandið var tekið út af vefnum eftir að fréttin birtist.
Myndbandið var hljóðskreytt með tónlist líkt og um eðlilegt afþreyingaefni væri að ræða en á því mátti sjá einn ungling ganga í skrokk á öðrum pilti. Allt í kring var hópur unglinga sem fylgdist með aðförinni sem virtist bæði gróf og niðurlægjandi. Í einu broti myndskeiðsins mátti sjá þriðja piltinn blanda sér inn í áflogin og slá fórnalambið bylmingshögg í andlitið.
Að lokum náði annar unglingurinn að snúa hinn niður og lét svo höggin dynja linnulaust á honum. Síðan reif hann drenginn upp, eins og sést á myndum hér við hliðina á, og hélt áfram að slá hann ítrekað í andlitið.
Eftir að frétt Vísis birtist um málið var myndbandið tekið út af Youtube-vefnum. Í kjölfarið hófs rannsókn lögreglunnar í Keflavík á málinu. Síðar gáfu piltarnir, sem eru fimmtán ára gamlir, sig fram til lögreglunnar og gáfu þær skýringar að atvikið hefði verið sett upp, eins og það var orðað.
Að sögn lögreglunnar voru drengirnir heldur lúpulegir yfir atvikinu en myndskeiðið var tekið upp síðasta haust.
Skólayfirvöld tóku málið í sínar hendur sem og barnaverndaryfirvöld í Reykjanesbæ. Ekki þótti ástæða til þess að rannsaka málið frekar af hálfu lögreglunnar.
Nefnd um erlendar fjárfestingar frestađi á fundi sínum í dag, ákvörđun um hvort dótturféla...
Skjáreinn ćtlar ađ hćtta međ útsendingar á fréttatímum í lok mánađarins. Samkvćmt heimildu...
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, ţingmađur Samfylkingarinnar, segist ekki vera sátt viđ hugmy...
Hćstiréttur sýknađi í dag Karl Georg Sigurbjörnsson lögmann sem ákćrđur var fyrir ađ hafa ...
Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alţingis heldur til Lundúna nćstkomandi mánudag ti...
Um 600 jarđskjálftar hafa mćlst í sjálfvirkri jarđskjálftamćlingu Veđurstofunnar frá ţví á...
Hćstiréttur stađfesti í dag dóm Hérađsdóms Reykjavíkur um ađ Sophia Hansen greiđi Sigurđi ...
„Ég er ađ verđa matarlaus. Ég veit ekki hvernig ég á ađ gefa börnunum mínum ađ borđa“ segi...
Laganemar í HR ćtla ađ taka á móti fólki í Nauthólsvík á laugardag sem vill ađstođ viđ ađ ...
Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu hefur upplýst innbrot í 21 bíl í Árbć í síđasta mánuđi og ...
Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu lýsir eftir vitnum af ţví ţegar reynt var ađ kveikja í möst...
Borgarráđ samţykkti í dag ađ gengiđ verđi til samninga um aukin afnot af Egilshöll fyrir í...
Ríkislögreglustjóri ćtlar ađ ráđa nýjan saksóknara sem mun starfa viđ hliđ ţess sem nú sta...
Íslensku hjónin sem urđu 66,4 milljónum ríkari ţegar ţau unnu í Víkingalottóinu í gćr ćtla...
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir ađ Hanna Birna Kristjánsdótti...
Foreldrar fjögurra ára bresks drengs hafa veriđ harđlega gagnrýndir eftir ađ upp...