Vísir, 02. feb. 2010 18:23

Lykilstarfsmenn eyddu sjö milljónum með greiðslukortum VR

Helga Arnardóttir skrifar:

Fjórtán yfirmenn hjá VR sem höfðu greiðslukort á vegum félagsins eyddu samtals rúmlega sjö milljónum króna árið 2008. Vísbendingar eru um að þeir hafi notað kortin í einkaneyslu en formaður VR fullyrðir að slík neysla hafi verið dregin af launum viðkomandi starfsmanna.

Fjórtán starfsmenn VR höfðu greiðslukort á vegum félagsins fyrir tveimur árum. Þetta voru þáverandi formaður VR, þáverandi varaformaður stjórnar félagsins, formaður Landsambands íslenskra verslunarmanna, 7 sviðsstjórar félagsins bæði fyrrverandi og núverandi starfsmenn, fyrrverandi starfsmannastjóri VR og þrír yfirmenn VR á Egilsstöðum, Akranesi og í Eyjum. Fréttastofa hefur undir höndum yfirlit yfir kortanotkun þessara starfsmanna allt árið 2008.

Heildarfjárhæð sem tekin var út á öll kortin er rúmlega 7 milljónir króna.

Fjöldi færslna sýnir kaup á flugfargjöldum innan-og utanlands fyrir hundruð þúsunda og hótelgistingu hérlendis og erlendis. Þetta eru allt ferðir sem starfsmenn hafa farið í á vegum VR. Þá eru einnig tugir færslna yfir kaup á mat á hinum ýmsu veitingastöðum, allt frá ódýrum skyndibitastöðum til dýrra veitingastaða í borginni. Auk þess eru færslur yfir kaup á eldsneyti og leigubílaferðum.

Það sem vekur hins vegar athygli er að svo virðist sem nokkrir starfsmenn hafi notað kortin að einhverju leyti í einkaneyslu. Færslur þess efnis skipta tugum.

Dæmi um það eru:

Úttekt í Marco O Polo fyrir tæpar ellefu þúsund krónur.

Í Skífunni fyrir tæpar fjögur þúsund krónur.

í Bræðrunum Ormsson fyrir sex þúsund krónur.

Úttekt í Hagkaupum í Kringlunni fyrir fimm þúsund krónur.

Úttekt í Vínbúðinni Kringlunni uppá tæpar tvö þúsund og fimm hundruð krónur.

Matarkaup á Ruby Tuesdays fyrir tæpar tvö þúsund krónur.

Úttekt á Vitabar fyrir 1000 krónur.

Þessar útttektir voru fyrir tíð Kristins Arnar Jóhannessonar núverandi formanns VR. Hann segir allar úttektir eiga sér skýringar. Fjármálastjóri, bókari og formaður félagins þurfi að samþykkja þær áður en reikningurinn sé greiddur.

Kristinn segir að kortin séu ekki til einkaneyslu og eingöngu hugsuð til að mæta útgjöldum fyrir félagið.

„Það eru tveir aðskildir aðilar og stundum þrír innan félagsins sem þurfa að samþykkja hverja færslu. Á bakvið hverja einustu færslu get ég fullyrt að það séu til reikningar með réttlætanlegum útgjöldum fyrir félagið. Ef svo er ekki er það dregið af launum starfsmanna."

Kristinn segist líta það mjög alvarlegum augum að persónugreinanleg gögn af þessu tagi hafi lekið til fjölmiðla. Augljóst sé að trúnaðarbrestur hafi orðið innan stjórnar félagsins.

„Ég fullyrði að þarna er ekkert óeðlilegt að finna. Til þess að sannreyna það þá hef ég falið endurskoðanda félagsins að fara yfir færslur síðustu þriggja ára. Ég mun leggja þá skýrslu fyrir stjórn og gera hana opinbera fyrir félagsmenn VR," segir Kristinn og bætir við.

„Hafi persónulegar úttektir starfsmanna ekki verið dregnar af launum þeirra árið 2008 þá er um fjárdrátt að ræða og það er mjög alvarlegt mál. Ég veit ekki til þess að það hafi komið upp hér innan félagsins. Það er bara eðlilegt að við fáum endurskoðendur til að fara yfir málin. Hér er allt uppi á borðum."

Sjálfur segist Kristinn hafa greiðslukort frá VR sem hann hafi notað í um tíu skipti frá því í haust, eingöngu í þágu félagsins.

Gunnar Páll Pálsson fyrrverandi formaður VR baðst undan viðtali vegna málsins.





Fleiri fréttir

Innlent 12. mar. 2010 03:30

Níu mánaða borgi sig inn á Latabæjarhátíð

„Þetta er fáránlegt. Ég er ekkert smá reið,“ segir Anna Vallý Baldursdóttir sem komst að þ...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 22:47

Danir og Svíar þrýsta enn á Íslendinga vegna Icesave

Norðurlöndin eru reiðubúin til þess að hjálpa Íslandi út úr efnahagskreppunni. Það er þau ...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 22:26

Gjábakkavegur algerlega ófær

Þótt ekki hafi veirð sérstaklega mikill snjór á Gjabakkavegi sinntu félagar í björgunarsve...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 21:03

Vill ræða innheimtuaðferðir Reykjavíkurborgar

Það skiptir mjög miklu máli að Borgin ekki síður en aðrir aðilar sem standa að innheimtu h...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 19:15

Flugumferðarstjórar aflýstu verkfalli

Félag flugumferðastjóra hafa aflýst verkfalli sem átti að hefjast á morgun klukkan sjö. Fu...  

Meira Myndskeið

Innlent 11. mar. 2010 18:07

Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í ár. Þau voru afhent ...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 20:33

Eldur í bifreið í Mosfellsdal

Eldur kom upp í Skoda bifreið sem var á leið um Mosfellsdalinn um sjöleytið í kvöld. Að sö...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 18:41

Fimm milljóna sjúkrahússreikningur gæti fallið á foreldra lítillar stúlku

Fimm milljón króna reikningur Sjúktatrygginga Íslands er í vanskilum við Barnaspítalann í ...  

Meira Myndskeið

Innlent 11. mar. 2010 19:53

Samningaviðræður verði teknar upp þegar í stað

Verkfalli flugumferðastjóra var frestað í ljósi fyrirheits ríkisstjórnarinnar um að viðræð...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 19:45

BSRB mótmælir öllum áformum um lagasetningu á verkföll

Áður en tilkynnt var að flugumferðastjórar myndu aflýsa verkfalli sendi BSRB frá sér álykt...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 18:26

Ákveðið að setja lög á flugumferðarstjóra

Lög verða sett á deilu flugumferðarstjóra við Flugstoðir til að koma í veg fyrir fjögurra ...  

Meira Myndskeið

Innlent 11. mar. 2010 18:16

Össur fundaði með utanríkisráðherra Danmerkur

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Lene Espersen utanríkisráðherra...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 18:03

Ásta Ragnheiður óskar Litháum til hamingju

Í dag eru 20 ár liðin síðan að litháíska þingið samþykkti sjálfstæðisyfirlýsingu landsins....  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 17:48

Engar athugasemdir gerðar við notkun á greiðslukortum

Deloitte endurskoðun gerir engar athugasemdir við notkun starfsmanna VR á greiðslukortum s...  

Meira

Innlent 11. mar. 2010 17:44

Lög hugsanlega sett á verkfall flugumferðarstjóra

Flugumferðarstjórar hafa setið á fundum með viðsemjendum síðan klukkan eitt í dag. Hlé var...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast


Nýtt á Vísi

Á að banna verkfall flugumferðastjóra með lagasetningu?


Kjörkassinn

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni