Vísir, 04. feb. 2010 22:44

Umfjöllun: Betur heima setiđ en af stađ fariđ

mynd
Akureyringar reyna hér ađ stöđva Jón Heiđar Gunnarsson í kvöld. Mynd/Anton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar:

Handboltalið Akureyrar hefði betur sparað sér peninginn í kvöld og verið heima hjá sér að horfa á Hildu Jönu flytja fréttir á N4 en að mæta í Krikann til þess að spila handbolta við FH-inga.

Í raun má segja að Akureyringar hafi hreinlega ekki mætt til leiks því frammistaða þeirra var svo ömurleg og andlaus að ég man vart eftir öðru eins.

Þetta magnaða baráttulið var ekki nema skugginn af sjálfu sér og engu líkara en liðið hefði enn verið með KEA-hamborgarhrygginn í maganum.

Það var engin stemning, engin barátta og nákvæmlega ekkert að gerast í leik liðsins. Bara andleysi og þunglyndi.

Ef ekki hefði verið fyrir frábæra frammistöðu Hafþórs í markinu þá hefði liðið verið rassskellt með svona 20 marka mun. Reyndar var afar áhugavert að Akureyringar skildu aðeins mæta með einn markvörð í kvöld.

Liðið lenti síðan í klípu er Hafþór fékk tveggja mínútna brottvísun. Þá fór Heimir Örn Árnason í markið og stóð sig ágætlega. Varði meðal annars eitt skot. Hann fór síðan í sóknina líkt og Austurríkismenn á EM. Dagur Sigurðsson virðist hafa breytt handboltanum með þessari taktík á mótinu.

Þó svo Akureyringar hafi verið andlausir þá tek ég ekkert af FH-ingum. Þeir gerðu sér fyllilega grein fyrir mikilvægi leiksins og mættu algjörlega tilbúnir í slaginn.

FH-ingar ætla sér greinilega stóra hluti í vetur og þeir hafa fulla burði til þess. Nái liðið stöðugleika og mæti eins tilbúið og í kvöld er því allir vegir færir.

Það var rétt í upphafi leiksins að Akureyringar stóðu í FH-ingum og þá aðallega þar sem Hafþór hélt þeim inn í leiknum en sóknarleikur liðsins var glæpsamlega lélegur.

FH-ingar sigu þó fram úr undir lok hálfleiks og leiddu þá með fimm mörkum, 14-9. FH-ingar gerðu síðan út um leikinn á upphafsmínútum síðari hálfleiks og Akureyringar gáfust einfaldlega upp.

Síðustu 20 mínúturnar voru allir að bíða eftir því að leiknum lyki enda úrslitin ráðin.

FH-Akureyri  33-25 (14-9)

Mörk FH (skot): Ólafur Gústafsson 6 (14), Ólafur Guðmundsson 5 (7), Bjarni Fritzson 5/3 (9/3), Ásbjörn Friðriksson 5 (8),  Jón H. Gunnarsson 4 (4), Benedikt Kristinsson 4 (6),  Bjarki Sigurðsson 1 (5), Ari Þorgeirsson 1 (3), Örn I. Bjarkason 1 (2)
Varin skot: Pálmar Pétursson 24 (42/3) 57%, Daníel Andrésson 4/1 (11/3) 36%.
Hraðaupphlaup: 10 (Ólafur Guðm. 5, Bjarni 2, Jón, Benedikt, Ólafur Gúst.)
Fiskuð víti: 3 (Örn Ingi, Bjarni, Jón)
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Akureyri (skot): Oddur Gretarsson 6/2 (10/3), Heimir Örn Árnason 4 (7), Andri Stefánsson 3 (5/1), Jónatan Magnússon 3/1 (10/2), Guðmundur Helgason 2 (6), Árni Sigtryggsson 2 (11), Hörður Sigþórsson 2 (2), Geir Guðmundsson 1 (1), Hreinn Hauksson 1 (1), Halldór Árnason 1 (1).
Varin skot: Hafþór Einarsson 23 (54/3) 43%, Heimir Örn Árnason 1 (3) 33%.
Hraðaupphlaup: 9 (Heimir 2, Oddur 2, Guðmundur, Andri, Árni, Halldór).
Fiskuð víti: 6 (Árni, Guðlaugur, Andri, Hreinn, Geir, Oddur).
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson & Hlynur Leifsson, mjög góðir.



Fyrst birt: 04. feb. 2010 22:33


Fleiri fréttir

Handbolti 19. mar. 2010 13:30

Vignir fer til Hannover í sumar

Vignir Svavarsson er búinn ađ semja viđ ţýska félagiđ Hannover-Burgdord eins og búist var ...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 22:56

N1-deild karla: Sigrar hjá Haukum, Fram og Val

Fjórir leikir fóru fram í N1-deild karla í kvöld. Akureyri vann FH og Haukar, Fram og Valu...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:56

Jónatan: Greddan var okkar megin

Jónatan Magnússon segir ađ Akureyringa hafi einfaldlega hungrađ meira í sigur en FH-inga. ...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:40

Einar Andri: Akureyringar voru beittari

Einar Andri Einarsson kennir slakri vörn um lélegan leik FH í fyrri hálfleik gegn Akureyri...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:32

Rúnar: Liđiđ er ađ ţróast mikiđ

Rúnar Sigtryggsson, ţjálfari Akureyrar, var brosmildur eftir góđan sigur á FH í kvöld. Lok...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 20:51

Umfjöllun: Akureyri drap FH-grýluna

Akureyri vann góđan 33-30 sigur á FH í N-1 deild karla í handbolta í kvöld. Akureyri var m...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 11:00

Tveir nýliđar í kvennalandsliđinu gegn Bretlandi

Júlíus Jónasson, ţjálfari kvennalandsliđsins í handbolta, hefur valiđ sextán manna hóp fyr...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 22:11

N1-deild kvenna: Valur lagđi Stjörnuna - Víkingur skorađi 8 mörk

Valsstúlkur eru enn ósigrađar í N1-deild kvenna eftir sterkan útisigur á Íslandsmeisturum ...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 15:00

Ná Stjörnustúlkur nú sigri gegn Val?

Ţrír leikir eru í N1-deild kvenna í dag. Stórleikur kvöldsins er í Mýrinni í Garđabć ţar s...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 06:00

Skemmtileg tilbreyting ađ berjast um titla

Ţađ leyndi sér ekki á svipbrigđum Björgvins Hólmgeirssonar í gćr ađ ţađ kom honum á óvart ...  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 20:30

Alfređ: Aron á margt sameiginlegt međ Lövgren

Lćrisveinar Alfređs Gíslasonar í Kiel fóru illa ađ ráđi sínu um helgina er liđiđ tapađi ge...  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 12:34

Aron og Björgvin bestir í umferđum 8-14

HSÍ hélt blađamannafund í dag og tilkynnti um úrvalsliđ umferđa 8-14 í N1-deild karla....  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 08:00

Einar Jónsson: Viđ erum međ betra liđ

Einar Jónsson, ţjálfari kvennaliđs Fram, var ađ vonum svekktur eftir sex marka tap, 15-21,...  

Meira

Handbolti 14. mar. 2010 18:26

Framkonur töpuđu seinni leiknum međ sex mörkum og eru úr leik

Fram er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir sex marka tap á móti Metalurg, 15-21, í sei...  

Meira

Handbolti 14. mar. 2010 16:38

Lino Cervar horfđi á Framstelpurnar vinna Metalurg í gćr

Lino Cervar, landsliđsţjálfari karlaliđs Króatíu, var á međal áhorfenda ţegar Framkonur un...  

Meira

Leit á Vísi

Íţróttir


Nýtt á Vísi

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni