- Forsíða
- Fréttir
- Viðskipti
- Íþróttir
- Lífið
- Umræðan
- Blogg
- Smáauglýsingar
- Vefmiðlar
- Fasteignir
- Skólalíf
- Atvinna
Íslensk fiskhausaþurrkun mun skapa um 50 ný störf í Nova Scotia í Kanada á næstu fimm árum. Yfirvöld í Nova Scotia hafa ákveðið að leggja 1,4 milljónir kanadadollara eða um 180 milljónir kr. sem lán í fyrirtækið.
Þetta kemur fram á vefsíðu blaðsins Chronicle Herald en um er að ræða íslenska eignarhaldsfélagið JHS Group Companies sem stofnað hefur JHS FishProducts Canada Inc. utan um þessa fiskhausaþurrkun. Fyrir rekur JHS Group fiskvinnslufyrirtækið JHS FishProducts Ltd. of England í Bretlandi.
Helgi Már Stefánsson verður forstjóri JHS FishProducts Canada Inc. og hefur hann þegar flutt til Yarmoth frá Íslandi með fjölskyldu sína. Hann segir í samtali við Chronicle Herald að starfsemin hefjist í mars n.k. og að áætluð mánaðarvelta fyrirtækisins muni nema um 640.000 kanadadollurum eða rúmlega 80 milljónum kr.
„Við munum skapa mikið af störfum á svæðinu með þessari starfsemi," segir Helgi Már.
Fyrir utan fyrrgreint lán mun lánastofnunin Nova Scotia Business Inc. leggja fyrirtækinu til afslátt á launum og launatengdum gjöldum að hámarki 390.000 kanadadollurum á næstu fimm árum
Það var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Nova Scotia, Sterling Belliveau, sem greindi frá þessum fyrirætlunum nú fyrir helgina. „JHS FishProducts er skínandi dæmi um fyrirtæki sem notar skapandi nálgun til að draga úr úrgangi, byggja upp rekstur og skapa störf í héraði okkar. Við erum stolt af þessari samvinnu," segir ráðherrann.
Fram kemur í fréttinni að þurrkaðir fiskhausar séu verðmæt og vinsæl vara í Afríku, einkum Nígeríu og í sumum Evrópulöndum. JHS FishProducts noti hráefni sem annars er hent í Norður-Ameríku og breyti því í þurrkaðar afurðir sem séu ríkar af omega-3 fitusýrum.
Hráefnið eru þorsk- og ýsuhausar og er áætlað að um 60% af því komi frá Nova Scotia en afgangurinn verði fluttur inn.
Lehman Brother notaði ýmis vafasöm ráð til að fegra stöðu sína í tveimur síðustu ársfjórðu...
Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, þvertekur fyrir að Kínverjar haldi gengi gjaldmiðils sí...
Tveir hópar fjárfesta horfa hýru auga til enska knattspyrnufélagsins Manchester United. Áð...
Tim Cook, sem var starfandi forstjóri Apple fyrirtækisins, fær 22, milljónir dollara eða 2...
Fall bandaríska stórbankans Lehman Brothers, sem hratt af stað heimskreppunni haustið 2008...
Bandaríkjadollar hefur hríðfallið gagnvart helstu gjaldmiðlum það sem af er degi. Mest er ...
Leikfangaverslanakeðjan Hamleys er komin í mikla útrás á Balkanskaganum. Hefur Hamleys ger...
Listamaðurinn Bill Drummond ætlar að búta niður listaverkið A Smell of Sulphur in the Wind...
Bandaríski stórbankinn Bank of America hefur ákveðið að hætta að rukka viðskiptavini sína ...
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) skilaði hagnaði upp á 324 milljónir evra eða um 56 mill...
Samkvæmt frétt á Reuters er Actavis með besta tilboðið í þýska samheitalyfjafyrirtækið Rat...
Vincos, sem er félag í eigu auðjöfursins Vincent Tchenguiz, stendur um þessar mundir í umf...
Mikill samdráttur varð milli ára í bílasölunni hjá hinum þekkta ítalska sportbílaframleiðe...
Í dag var undirritaður upplýsingaskiptasamningur milli Norðurlanda og Bahamaeyja til að sp...
Tveir draugar á flöskum voru seldir á uppboði á Nýja Sjálandi fyrir um 250.000 kr. Samkvæm...
Framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja virðist hafa verið fullkunnugt um að...