Fréttablaðið, 08. feb. 2010 06:00

Raunsæi og ábyrgð

mynd

Oddný G. Harðardóttir skrifar:

Það var öllum ljóst í aðdraganda síðustu kosninga að verkefni nýrrar ríkisstjórnar yrðu risavaxin og að þau myndu fyrst og fremst snúast um tiltekt og niðurskurð og þá loks endurreisn. Við sem buðum okkur fram vissum að það þyrfti að gera meira en bara það sem til vinsælda er fallið á þessu kjörtímabili. Það hefur strax komið í ljós. Vinna okkar í fjárlaganefnd hefur ekki aðeins verið strembin vegna hins yfirþyrmandi leiðindamáls sem kennt er við Icesave heldur einnig, og ekki síður, vegna þess að mikill niðurskurður er nauðsynlegur. Tugmilljarða halli er á ríkissjóði og það er vandi sem verður að taka á strax og af festu. Við höfum reynt að hlífa sem mest heilbrigðisstofnunum og félagslegri þjónustu en engu að síður þurfti að rifa þar seglin um 5%.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur ekki farið varhluta af þessum niðurskurði þrátt fyrir mikinn rekstrarvanda undanfarin ár. Árið 2008 tókst okkur sem störfuðum í sveitarstjórnum á Suðurnesjum að fá leiðréttingu á reiknilíkani sem liggur fjárveitingum til stofnunarinnar til grundvallar. Sú leiðrétting gaf 60 milljón króna viðbót til rekstrar og í fjárlögum 2010 voru auk þess veittar 15 milljónir til heilsugæslunnar. Þrátt fyrir þetta er enn tekist á um fjárveitingar til HSS. Ég hef lagt á það áherslu að við Suðurnesjamenn veigrum okkur ekki við að hagræða og spara eins og aðrir landsmenn þegar kreppir að, en við gerum jafnframt kröfu til þess að tekið sé tillit til starfsaðstæðna HSS og að fjárveitingar séu í samræmi við þær líkt og á öðrum landssvæðum þannig að tryggt sé að réttlætis sé gætt. Krafa íbúanna hlýtur að vera að ráðuneytið og stjórnendur HSS leggi sig alla fram við að leita allra mögulegra leiða til að halda uppi góðri heilsugæslu á svæðinu. Þá þarf að velta öllu við og raða upp að nýju. Helsti vandi okkar hefur verið skortur á læknum. Við þurfum að fá fleiri lækna til stofnunarinnar og greiða þeim eðlileg laun en eyða ekki umtalsverðum fjármunum í álagsgreiðslur fyrir fáa lækna sem sannanlega eru undir alltof miklu álagi. Miðað við íbúafjölda ættu að starfa við heilsugæsluna 17 læknar en þeir eru aðeins sex sem starfa þar núna og með þeim tveir til þrír unglæknar. Reksturinn væri mun hagkvæmari ef við hefðum fleiri heilsugæslulækna við stofnunina.

Það útheimtir mikla yfirlegu hjá stjórnendum stofnana að finna út hvernig þeir geti uppfyllt leiðarljós ráðuneyta um að skera niður, hagræða og spara, þ.e. að verja eins og kostur er störf og þjónustu. Þetta gengur ekki alls staðar vel. Á síðustu dögum hefur þó öllu verið til tjaldað til að gera niðurskurðinn á HSS sem sársaukaminnstan. Við höfum farið með ráðuneytinu yfir forsendur reiknilíkans, ráðuneytið mun greina kostnað vegna fjölgunar á fyrrverandi varnarsvæðinu við Ásbrú, meta kostnað vegna nálægðar við alþjóðaflugvöll og leiðrétta útreikninga vegna sjúkrarúma fyrir aldraða sem hafa verið vanmetnir. Hér nefni ég aðeins nokkur dæmi um það sem gert hefur verið og ítreka þá skoðun mína að ég er reiðubúin að skoða allar góðar hugmyndir, þar með talið yfirtöku sveitarfélaga á rekstri HSS, megi það verða til þess að þjónusta þessarar allra mikilvægustu stofnunar Suðurnesja verði í samræmi við þarfir þess fjölda íbúa sem reiðir sig á hana.

Þeir sem berjast gegn skattahækkunum ríkisstjórnarinnar verða líka að gera sér grein fyrir því að viðsnúningur í þeim efnum kallar á enn frekari niðurskurð. Þeir sem berjast gegn niðurskurði OG skattahækkunum verða því að sýna með ábyrgum hætti hvar ná á í fjármagn til að viðhalda óbreyttum rekstri. Á tímum niðurskurðar er mikilvægt að forgangsraða með réttum hætti. Það er hægt að bíða með ýmislegt en enginn getur skotið veikindum á frest. Raunsæi og ábyrgð eru lykilatriði í baráttu okkar Suðurnesjamanna fyrir sameiginlegri velferð.

Höfundur er þingkona Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og bæjarfulltrúi Sveitarfélagsins Garðs.



Fleiri fréttir

Aðsendar greinar 16. mar. 2010 06:00

SMS-lán og fjárhagsleg heilsa

Ragnheiður Sverrisdóttir skrifar um falskar lausnir...  

Meira

Aðsendar greinar 15. mar. 2010 19:49

Enn einn sölumaður siglir í bæinn

Það var í þessum skrifuðu orðum að upplýsa á RUV að Rússinn Alex Jurshevski hafi reynt að...  

Meira

Aðsendar greinar 15. mar. 2010 06:00

Þjóðin þarfnast auðlinda sinna

Karl V. Matthíasson skrifar um sjávar-útvegsmál...  

Meira

Aðsendar greinar 15. mar. 2010 06:00

Samstaða

Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengur að deila...  

Meira

Aðsendar greinar 13. mar. 2010 06:00

Fæðubót: Böl eða blessun?

Faðir minn kenndi mér ungum að gleðjast aldrei yfir óförum annarra. Ég verð þó að játa að ...  

Meira

Aðsendar greinar 13. mar. 2010 06:00

Nýtum tækifærið

Íslenska heilbrigðiskerfið er eitt það besta í heimi. Það státar af vel menntuðu og þjálfu...  

Meira

Aðsendar greinar 13. mar. 2010 06:00

Uppstokkun

Fjölmiðlar ræða nú „uppstokkun“ í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna og eitthvað e...  

Meira

Aðsendar greinar 12. mar. 2010 06:00

„Fréttir“

Rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna voru settar á flot alls konar vitleysis-sögur um gang v...  

Meira

Aðsendar greinar 11. mar. 2010 06:00

Eyðum óvissunni

Á liðnum vikum hafa samtök útgerðarmanna gengist fyrir fundaherferð gegn áformum stjórnval...  

Meira

Aðsendar greinar 11. mar. 2010 06:00

Þverpólitísk samstaða

Árangur í stjórnmálum og samstaða um lausnir liggur oft í því hvernig nálgun menn hafa á v...  

Meira

Aðsendar greinar 11. mar. 2010 06:00

Framkvæmdastopp í Reykjavík

Átakalínurnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninga eru að skýrast. Samfylkingin vill að Rey...  

Meira

Aðsendar greinar 11. mar. 2010 06:00

Stúdentar í óvissu

Á undanförnum misserum hefur atvinnuleysi á Íslandi aukist hröðum skrefum. Alþýðusamband Í...  

Meira

Aðsendar greinar 11. mar. 2010 06:00

Guðmundi Andra svarað

Guðmundur Andri á við bæjarstjóra Á-lista, sem „þriðja bæjarstjórann“, í skrifum sínum á d...  

Meira

Aðsendar greinar 10. mar. 2010 06:00

Engin ríkisábyrgð?

Hvernig verður réttlátri niðurstöðu náð í Icesave-deilunni? Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna ...  

Meira

Aðsendar greinar 10. mar. 2010 06:00

Listaverkin aftur til þjóðarinnar

Fréttir berast nú af því að Listasafni Íslands hafi verið tryggður forkaupsréttur á verkum...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Opnið augun

Opnið augun

Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengu...


Nýtt á Vísi

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Aðsendar greinar"--