Stöð 2, 08. feb. 2010 18:45

Arion banki stefnir Björgólfi Thor

mynd
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Þorbjörn Þórðarson skrifar:

Arion banki hefur nú höfðað mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna persónulegra ábyrgða sem hann og faðir hans tókust á hendur þegar Samson fékk lán hjá Búnaðarbankanum vorið 2003 til að kaupa Landsbankann. Skuld feðganna stendur í tæpum sex milljörðum króna í dag.

Þegar Landsbankinn var einkavæddur vorið 2003 var þriðjungur kaupverðsins sem Samson greiddi fyrir bankann fjármagnaður með láni hjá Búnaðarbanka Íslands. Halldór J. Kristjánsson, þáverandi bankastjóri Landsbankans, var gerður út af örkinni til að óska eftir láni upp á 3,4 milljarða króna fyrir væntanlega eigendur, en á þessum tímapunkti höfðu Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson ekki fengið lyklavöld í bankanum og var hann því enn að forminu til ríkisbanki þegar þetta átti sér stað.

Lánið til Samsonar var formlega afgreitt hinn 25. apríl 2003 en í nokkrar vikur þar á undan hafði verið unnið að lánasamningnum. Elín Sigfúsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Búnaðarbankans, undirbjó lánveitinguna, en hún var sem kunnugt er einn fjölmargra starfsmanna Búnaðarbankans sem ráðnir voru yfir til Landsbankans í apríl 2003.

Lánið stendur nú í 6 milljörðum króna með dráttarvöxtum og er hjá Arion banka. Þegar lánið var veitt á sínum tíma gerði Sólon Sigurðsson, þáverandi bankastjóri Búnaðarbankans, þá kröfu að feðgarnir tækjust á hendur persónulega ábyrgð samfara láninu. Á síðasta ári þegar tilraunir Nýja Kaupþings við innheimtu kröfunnar hófust fyrir alvöru voru feðgarnir reiðubúnir að greiða helming skuldarinnar gegn niðurfellingu á hinum helmingnum. Á þetta var ekki fallist af hálfu bankans. Nú er svo komið að bankinn hefur stefnt Björgólfi Thor til innheimtu skuldarinnar á grundvelli hinnar persónulegu ábyrgðar, en bankinn stefnir honum einum þar sem Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota.

Ef dómur gengur í málinu getur bankinn gengið að eignum Björgólfs Thors, en hann á bæði fasteignir og hluti í fyrirtækjum á Íslandi. Þar má til dæmis nefna Vern Holdings, tölvuleikjafyrirtækið CCP, fjarskiptafyrirtækið Nova og lyfjasamsteypuna Actavis. Talsmaður Björgólfs Thors sagði í samtali við fréttastofu að Björgólfi væri ekki kunnugt um málshöfðunina og hefði til þessa litið svo á að hann væri enn í samningaviðræðum við Arion banka.










Fleiri fréttir

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 21:01

Forsætisráðherra: Erum ekki að fara selja orku fyrir Icesave

„Þetta er bara uppspuni, forsætisráðherra hefur ekki tekið neina afstöðu í þessu né skoðað...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 18:47

Glitnir lánaði Byr og Byr lánaði FL Group sömu upphæð

Glitnir lánaði Byr Sparisjóði þrjá milljarða króna á sama tíma og sjóðurinn lánaði FL Grou...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 18:35

Kaupþing rannsakar 20 aflandsfélög vegna tugmilljarða viðskipta

Skilanefnd Kaupþings hefur tekið rúmlega 20 félög og félagasamstæður í þekktum skattaskjól...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:21

Planck stofnunin býður stjórnvöldum lausn á Icesave

Planck stofnunin í Hollandi (Planck Foundation) hefur boðið íslenskum stjórnvöldum áætlun ...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 17:23

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,35 prósent

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hækkaði um 1,58 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylg...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 16:02

Áfram mikil velta á skuldabréfamarkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 16,8 milljarða kr. viðskiptum. GAM...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:42

Eyrir Invest tapaði fjórðum milljörðum króna

Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest tapaði rúmum 23,6 milljónum evra í fyrra. Þetta jafngild...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:32

Endurskipulagning Farice framlengd til 1. apríl

Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og kröfuhafar þess gerðu í desember 2009...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:13

Íslandsbanki setur Hafnarslóð í söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 14:18

Orkuveita Reykjavíkur tapaði 2,5 milljörðum í fyrra

Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBI...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 13:50

Hagnaður Landsvirkjunar nam 24,4 milljörðum í fyrra

Hagnaður Landsvirkjunnar á síðasta ári nam 193 milljónum dollara sem svarar til um 24,4 mi...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 12:06

Innflutningur á byggingarefnum hefur hrapað

Minnkandi umsvif byggingariðnaðarins koma glögglega í ljós þegar tölur Hagstofunnar um inn...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 09:49

MIT Global Startup Workshop haldin á Íslandi

Dagana 24. - 26. mars nk. fer fram á Íslandi ein virtasta frumkvöðlaráðstefna í heiminum, ...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 09:11

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar lítilega

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2010 er 101,1 stig sem er hækkun um 0,3...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 08:04

Greining: Verðbólgan verður 8,9% í mars

Greining MP Banka reiknar með því að ársverðbólgan fari í 8,9% í marsmánuði og aukist því ...  

Meira

Leit á Vísi

Viðskipti


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni