Vísir, 08. feb. 2010 09:23

HS Orka hagnaðist um 6,8 milljarða í fyrra

mynd
Hagnaður HS Orku á síðasta ári nam 6,8 milljörðum kr. samanborið við tap að upphæð 11,7 milljörðum kr. á árinu 2008. Þegar tekið hefur verið tillit til tekna og gjalda færðra á eigið fé er afkoman í heild jákvæð um um 8,15 milljarða kr. samanborið við tap að upphæð 4,7 milljarða kr. árið áður.

Í tilkyningu segir að betri heildarafkoma stafar í meginatriðum af hækkun á álafleiðum (framtíðarvirði álsölusamninga) og lækkun gengistaps frá árinu 2008. Ársreikningur HS Orku hf var samþykktur af stjórn félagsins á stjórnarfundi félagsins sem haldinn var um helgina.

Samkvæmt ársreikningnum námu heildartekjur HS Orku hf á árinu tæpum 6,3 milljörðum kr. samanborið við 5,4 milljarða kr. árið áður. Þessa tekjuaukningu má í meginatriðum rekja til þjónustutekna frá HS Veitum hf sem byggja á verksamningi milli fyrirtækjanna. Samsvarandi aukning er þá á kostnaðarhlið fyrirtækisins. Aðrar tekjur námu 784 milljónum og skapast af sölu lands og hitaréttinda.

"Þrátt fyrir að árið hafi verið erfitt fyrir íslenskt efnahagslíf þá hefur HS Orku hf tekist að ná mjög hagstæðri rekstrarafkomu á árinu og náð að bæta eiginfjárstöðu verulega eða úr 16,3% í 35,5%," segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf. "Meginástæðan er hækkun álverðs og stöðugra gengi íslensku krónunnar og miklvægt að sú þróun haldi áfram".

Framleiðslu- og sölukostnaður nam 4,4 milljörðum kr. samanborið við 3,1 milljarð kr. árið áður. Aukning skapast vegna þjónustu við HS Veitur hf svo og aukningu kostnaðar við framleiðslu og sölu orkunnar. Önnur rekstrargjöld námu 499 milljónum kr. samanborið við 377 milljónir kr. á árinu 2008. Aukning annarra rekstrargjalda stafar aðallega af sérstakri afskrift þróunarkostnaðar að upphæð 142 milljónir kr.





Fleiri fréttir

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 21:01

Forsætisráðherra: Erum ekki að fara selja orku fyrir Icesave

„Þetta er bara uppspuni, forsætisráðherra hefur ekki tekið neina afstöðu í þessu né skoðað...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 18:47

Glitnir lánaði Byr og Byr lánaði FL Group sömu upphæð

Glitnir lánaði Byr Sparisjóði þrjá milljarða króna á sama tíma og sjóðurinn lánaði FL Grou...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 18:35

Kaupþing rannsakar 20 aflandsfélög vegna tugmilljarða viðskipta

Skilanefnd Kaupþings hefur tekið rúmlega 20 félög og félagasamstæður í þekktum skattaskjól...  

Meira Myndskeið

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:21

Planck stofnunin býður stjórnvöldum lausn á Icesave

Planck stofnunin í Hollandi (Planck Foundation) hefur boðið íslenskum stjórnvöldum áætlun ...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 17:23

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,35 prósent

Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hækkaði um 1,58 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylg...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 16:02

Áfram mikil velta á skuldabréfamarkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 16,8 milljarða kr. viðskiptum. GAM...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:42

Eyrir Invest tapaði fjórðum milljörðum króna

Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest tapaði rúmum 23,6 milljónum evra í fyrra. Þetta jafngild...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:32

Endurskipulagning Farice framlengd til 1. apríl

Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og kröfuhafar þess gerðu í desember 2009...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 15:13

Íslandsbanki setur Hafnarslóð í söluferli

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt ferli sem lýtur að...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 14:18

Orkuveita Reykjavíkur tapaði 2,5 milljörðum í fyrra

Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBI...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 13:50

Hagnaður Landsvirkjunar nam 24,4 milljörðum í fyrra

Hagnaður Landsvirkjunnar á síðasta ári nam 193 milljónum dollara sem svarar til um 24,4 mi...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 12:06

Innflutningur á byggingarefnum hefur hrapað

Minnkandi umsvif byggingariðnaðarins koma glögglega í ljós þegar tölur Hagstofunnar um inn...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 09:49

MIT Global Startup Workshop haldin á Íslandi

Dagana 24. - 26. mars nk. fer fram á Íslandi ein virtasta frumkvöðlaráðstefna í heiminum, ...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 09:11

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar lítilega

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2010 er 101,1 stig sem er hækkun um 0,3...  

Meira

Viðskipti innlent 19. mar. 2010 08:04

Greining: Verðbólgan verður 8,9% í mars

Greining MP Banka reiknar með því að ársverðbólgan fari í 8,9% í marsmánuði og aukist því ...  

Meira

Leit á Vísi

Viðskipti


Nýtt á Vísi

Markaðurinn

Markaðurinn

Viðskiptaorðabók

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni