Telur Svandísi brjóta gegn stjórnsýslulögum 9. febrúar 2010 12:00 Halldór Halldórsson. MYND/Heiða
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi brotið gegn stjórnsýslulögum þegar hún hafnaði skipulagi Þjórsárvirkjana. Dæmi eru um að sveitarfélög séu með ákvæði um gjaldtöku fyrir aðalskipulag í sérstökum samþykktum, sem ráðherra hefur staðfest. Halldór Halldórsson, formaður Sambandsins, kveðst í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 telja að umhverfisráðherra hafi ekki í hinum umdeilda úrskurði fært fullnægjandi rök fyrir ákvörðun sinni. Sem kunngt er hafnaði Svandís aðalskiplagi vegna virkjana sökum þess að Landsvirkjun greiddi kostnað við skipulagsvinnuna. Halldór telur úrskurðinn ekki góða stjórnsýslu og segir hann ganga bæði gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og meðalhófsreglu. Hann sé brot á jafnræðisreglu vegna þess að sveitarfélög hafi margoft áður fengið greitt fyrir aðalskipulagsvinnu, án þess að athugasemd væri gerð, og brot gegn meðalhófsreglu vegna þess að sveitarfélögunum hafi ekki verið gefið færi á leiðréttingu eða að koma með athugasemdir. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur nú óskað eftir fundi með umhverfisráðherra um málið en fulltrúar þess hafa þegar rætt það óformlega við Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála. Bæjarstjóri Ölfuss, Ólafur Áki Ragnarsson, hefur sagt nauðsynlegt að látið verði reyna á stjórnsýslu Svandísar Svavarsdóttur í þessu máli fyrir dómsstólum. Ákvörðun hennar setur til dæmis Ölfus í vanda gagnvart sex ára gamalli samþykkt sveitarfélagsins um gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld og þjónustugjöld. Ákvæði hennar mæla beinlínis fyrir um það að aðilar sem sækja um lóð eða byggingarleyfi, sem hafi í för með sér breytingu á aðalskipulagi og/eða deiliskipulagi, skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Þessi samþykkt Sveitarfélagsins Ölfuss hefur hlotið staðfestingu ráðherra. Bæjarstjóri Ölfuss telur að fjöldi annarra sveitarfélaga hafi einnig slíkar gjaldtökuheimildir í samþykktum sínum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira