Fréttablaðið, 09. feb. 2010 06:00

Eldfjallið í Kópavogi

mynd

Ármann Kr. Ólafsson skrifar:

Þríhnúkar nefnast þrír litlir hnúkar, sem standa á hálendisbrúninni skammt vestur af Bláfjöllum. Undir gíg norðaustasta hnúksins leynist tröllaukið holrými, sem gerir Þríhnúkagíg að einu stærsta og merkilegasta náttúrufyrirbrigði sinnar tegundar á jörðinni. Óhætt er að telja að hrikaleiki gígsins muni laða að ferðamenn og verða eitt af sérkennum Íslands líkt og Gullfoss, Geysir og Bláa lónið.

Segja má að aðgengi að Þríhnúkagíg sé jafn hrikalegt gígnum sjálfum. Náttúran er hér í meginhlutverki og afar mikilvægt er að svo verði áfram. Það er því í senn áhugavert og krefjandi verkefni að gera náttúruundrið í Þríhnúkagíg aðgengilegra ferðamönnum. Áætlað hefur verið að það muni kosta um 900 milljónir króna en engir sýningarhellar eru hér á landi, þótt ótrúlegt megi virðast. Slíkan sýningarhelli skortir sárlega og má reikna fastlega með að einn sérstæðasti hellir heims, staddur í jaðri höfuðborgarsvæðisins, muni draga að lungann úr þeim ferðamönnum sem sækja Ísland heim. Eitt stærsta verkefni ferðaþjónustunnar er að lengja íslenska ferðaárið. Þríhnúkagígur getur lagt þýðingarmikið lóð á þá vogarskál, með því að styrkja markaðssetningu á borgar- og ráðstefnuferðum hingað til lands.

Þríhnúkar, sem eru í lögsögu Kópavogs, tilheyra Bláfjallafólkvangi sem stofnaður var með friðlýsingu árið 1973. Bláfjallanefnd fer með stjórn fólkvangsins, en alls 13 sveitarfélög á suðvesturhorni landsins eiga aðild að rekstri hans. Í ljósi þessa er eðlilegt að Kópavogur taki frumkvæði og ýti þessu verkefni úr vör í samstarfi við hin sveitarfélögin innan Bláfjallafólkvangs ásamt einkaaðilum. Þetta yrði verðugt samstarfsverkefni einkageirans og hins opinbera þjóðinni til heilla.

Þríhnúkagígur er náttúruundur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins sem fáir hafa vitað af þar til síðustu ár. Árni B. Stefánsson augnlæknir hefur að öðrum ólöstuðum verið sá sem hefur verið hvað ötulastur við að rannsaka hellinn og koma honum á framfæri ásamt þeim skilyrðum að tryggt verði að gígurinn og umhverfi hans verði varðveitt. Það er nauðsynlegt að þetta mikilvæga verkefni sé unnið af hófsemi og virðingu fyrir náttúrunni og þessu einstaka náttúruundri.

Höfundur er forseti bæjarstjórnar Kópavogs.



Fleiri fréttir

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Hagsmunir hverra?

Eignarhald á íslenskum fyrirtækjum er óvenjulegt um þessar mundir. Mörg eru undir forsjá r...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Hestadagar í Reykjavík

Óskar Bergsson skrifar hestamennsku...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Sjálfdæmi eða regla

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar um gegnsæi...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Í átt að heilbrigðara samfélagi

Jóhann Ingi Kolbeinsson skrifar um samkeppni...  

Meira

Aðsendar greinar 19. mar. 2010 06:00

Boðberar válegra tíðinda

Magnús Karl Magnússon, Guðmundur Þorgeirsson og Sigurður Guðmundsson skrifa um Herbalife...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 09:27

Alex Jurshevski og þingmenn Íslands

Alex Jurshevski, skeleggi Kanadamaðurinn sem hræddi líftóruna úr...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Verkaskipting og samstarf FME og Seðlabankans

Gunnar Axel Axelsson skrifar um ábyrgð á fjármálastöðugleika og fall fjármálakerfisins...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Hvað kostar sanngirni?

Lára Magnúsardóttir skrifar um sanngirnisbætur...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Fíkniefnahundar í skólum

Árni Einarsson skrifar um forvarnir...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Vernd fyrir níðinga

Guðjón Sigurðsson skrifar um samfélagsmál...  

Meira

Aðsendar greinar 18. mar. 2010 06:00

Ljós hvað?

Birgir Rafn Þráinsson skrifar um háhraða nettengingar...  

Meira

Aðsendar greinar 17. mar. 2010 06:00

Afréttarinn mikli

Haustið 2008 reið stærsta fjármálakreppa allra tíma yfir á Íslandi. Á sama tíma sprakk ris...  

Meira

Aðsendar greinar 17. mar. 2010 06:00

Foreldrar og skólastarf

Guðrún Valdimarsdóttir skrifar um menntamál...  

Meira

Aðsendar greinar 16. mar. 2010 06:00

SMS-lán og fjárhagsleg heilsa

Ragnheiður Sverrisdóttir skrifar um falskar lausnir...  

Meira

Aðsendar greinar 15. mar. 2010 19:49

Enn einn sölumaður siglir í bæinn

Það var í þessum skrifuðu orðum að upplýsa á RUV að Rússinn Alex Jurshevski hafi reynt að...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Lýðræðissjóðir?

Lýðræðissjóðir?

Þótt lífeyrissjóðir landsmanna hafi orðið fyrir miklu áfalli í hruninu og tapað ...


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Aðsendar greinar"--