Óvíst með fjármagn og orku fyrir kísilinn 12. febrúar 2010 05:00 Helguvík Horft yfir framkvæmdasvæði við álver Norðuráls í Helguvík. Kísilmálmverksmiðjan á að rísa á svæði nær höfninni, efst til vinstri á myndinni. Hún á að skapa 300 störf á framkvæmdatíma en 90 munu starfa í verksmiðjunni þegar hún er komin í full afköst, og afleidd störf verða níutíu.Fréttablaðið/GVA
Fjármögnun er ekki að fullu lokið og orkusölusamningar liggja ekki fyrir vegna kísilmálmverksmiðju í Helguvík. Áformað er að hefja framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar í sumar. „Það er stutt í mark,“ segir Magnús Garðarsson, forstjóri Tomahawk Development, sem stýrir verkefninu. Áætlanir miðist nú við að verksmiðjan taki til starfa 1. júní 2012. Eftir er að tryggja um 20 prósent af nauðsynlegri fjármögnun en viðræður eru í gangi við evrópska og bandaríska banka, segir Magnús. „Það hefur ríkt mikil óvissa um Ísland í Evrópu.“ Margir bankar hafi sagt nei en sumir kannski. „Við erum á réttri leið og ég er viss um að þessi 20 prósent finnast,“ segir hann. Bandarísk kísilmálmbræðsla mun eiga meirihluta í verksmiðjunni á móti Magnúsi og öðrum aðstandendum Tomahawk. Hann vill ekki ræða um samstarfsaðilann. Það fyrirtæki sé bundið af reglum á Nasdaq-markaðnum bandaríska um birtingu upplýsinga. Magnús vildi ekkert láta hafa eftir sér um orkuöflun og orkusölusamninga til verksmiðjunnar. Í skýrslu sem Capacent hefur unnið fyrir Reykjanesbæ og kynnt var bæjarráði í gærmorgun segir að framkvæmdir við kísilmálmverksmiðjuna muni hefjast nú í apríl en verksmiðjan taki til starfa í byrjun 2012. Í skýrslunni virðist gert ráð fyrir því að orkusölusamningur liggi fyrir um fyrri áfanga en að samningur „um annan ofn komi inn um mitt ár eða í síðasta lagi 2012“. Kísilmálmverksmiðjan þarf 60 MW af orku til þess að knýja tvo ofna. Fyrir lá samningur við HS Orku um nauðsynleg 30 MW til að knýja fyrri áfanga af tveimur. Gert var ráð fyrir að raforkan yrði afhent frá 1. nóvember 2011. Að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS Orku, er þessi samningur fallinn úr gildi. „Þeir lentu í vandræðum með sinn samstarfsaðila í Bandaríkjunum. Núna eru þeir komnir með annan samstarfsaðila en samningarnir voru runnir út.“ Júlíus segir að nýjar viðræður séu ekki á byrjunarreit heldur byggi á grunni eldri samnings. Enginn samningur sé hins vegar í gildi. Þeirri orku sem eldri samningur snerist um hefur nú verið ráðstafað til til væntanlegs álvers Norðuráls í Helguvík, að sögn Júlíusar. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira