Innlent

Galdurinn gegn Bretum og Hollendingum virkaði

Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði.
Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Galdur sem Ásatrúarmenn lögðu á óvini Íslendinga í upphafi kreppunnar virðist nú loks vera bera tilætlaðan árangur. Ríkisstjórn Hollands er fallin og Gordon Brown berst nú fyrir sínu pólitíska lífi.

Ásatrúarmenn ákölluðu landvættina til varnar íslenskri þjóð í upphafi kreppunnar og þá voru óvinir þjóðarinnar lýstir griðníðingar.

Svo virðist sem ákall ásatrúarmanna hafi loks skilað árangri einu og hálfu ári seinna. Hollenska ríkisstjórnin er nú fallin og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur átt í vök að verjast á undanförnum mánuðum.

Erfiðleikar breska forsætisráðherrans koma allsherjargoða ekki á óvart enda beindist galdurinn meðal annars að honum.

„Kannski til þess að botna þetta þá settumst við Steindór Andersen niður og ortum oddhendu sem er sjaldgæft bragarháttur í ensku og hún hljómar svona:

In London town this lying clown

our land he drowns and shatters.

Gordon Brown is going down,

his good renown in tatters.

þetta virðist vera virka sem betur fer," segir Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði.

Þá hafa miklar vetrarhörkur geisað í Evrópu og Bretar meðal annars talað um íslenskan vetur í því samhengi.

„Þeim finnst þessi vetur sem þeir hafa verið að fá verið okkar vetur og væntanlega hefur það táknræna merkingu," segir Hilmar Örn.

Aðspurður af hverju það hafi tekið svona langan tíma fyrir galdurinn að virka segir Hilmar Örn: „Ég veit að menn höfðu trú á því í gamla daga að svona ákveðnum hugsunum þyrftu að krækja yfir og framhjá vötnum og slíku. Kannski hefur Atlantshafið eitthvað tafið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×