Ţjóđaratkvćđi um stjórnleysi

Fréttablađiđ Fastir pennar 27. febrúar 2010 06:00
Ţorsteinn Pálsson
Ţorsteinn Pálsson
Ţorsteinn Pálsson skrifar:

Eftir að Icesave hefur enn steytt á skeri blasir þjóðaratkvæði við. Þegar mál eru lögð fyrir þjóðina þarf það að gerast með þeim hætti að hún hafi úrslitavald um það á hvern veg þau eru til lykta leidd. Kjósendur eiga að ljúka deilu hvort sem þeir segja já eða nei.

Nú er hins vegar svo komið að lögin sem greiða á atkvæði um eru með öllu marklaus. Þrennt hefur breyst. Í fyrsta lagi hefur ríkisstjórnin með nýju samningstilboði viðurkennt í verki að lögin eru óásættanleg. Í öðru lagi hafa viðsemjendurnir þegar fallist á betri kost en lögin mæla fyrir um.

Í þriðja lagi hefur stjórnarandstaðan að kröfu viðsemjendanna fengið eins konar úrslitavald um nýja samninga. Hún hefur ekki enn sýnt hvar þolmörkin verða sett. Það gerist tæplega meðan samningaviðræður eru ekki í gangi. Með öðrum orðum: Á borðinu er engin lausn til að kjósa um.

Við ríkjandi aðstæður er því rökrétt að ríkisstjórnin leggi fyrir Alþingi að fella lögin úr gildi og hætti þar með við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það eina sem fæst út úr þjóðaratkvæðagreiðslunni er staðfesting á að landið er stjórnlaust. Gæti ekki verið rétt að bregðast strax við þeirri staðreynd?

Fullveldið, völdin og ábyrgðin

Það kom ekki á óvart þegar Bretar og Hollendingar gerðu kröfu um að stjórnarandstaðan kæmi að nýjum icesave- samningum. Sú nýja staða létti lund þorra fólks.

Léttirinn er trúlega skýringin á því að fáir hafa horft á formlega hlið málsins. Með kröfu sinni voru ríkisstjórnir Bretlands og Hollands í raun og veru að brjóta gegn þeim fullveldisrétti þjóðarinnar að hún velji sjálf hverjir fara með stjórn á málum hennar. Það var ríkisstjórnar Íslands en ekki Bretlands og Hollands að kalla stjórnarandstöðuna til.

Afstaða Breta og Hollendinga var þó vel skiljanleg í ljósi stöðunnar. Athyglisverðast er að ríkisstjórnin féllst á þetta skilyrði athugasemdalaust. Þrátt fyrir öflugan þingmeirihluta gat hún ekki leyst málið og átti því ekki annarra kosta völ nema að segja af sér. Það fannst henni verri kostur. Því tók hún niðurlægingunni hljóðalaust.

Stjórnarandstöðuflokkarnir sýndu ábyrgð með því að koma inn í samninga á þessum forsendum. Þeir þurftu ekki að koma ríkisstjórninni til hjálpar. En fyrir vikið hvílir pólitíska ábyrgðin á lausn málsins nú bæði á stjórn og stjórnarandstöðu. Lagalega ábyrgðin hvílir hins vegar alfarið á ráðherrunum.

Þeir hafa sjálfir bent á hættuna á greiðsluþurrð ríkissjóðs leysist málið ekki. Ófullnægjandi aðgerðir í ríkisfjármálum geta haft sömu áhrif. Alþýðusambandið hefur nú bent á að allt stefnir í þá átt. Ríkisstjórnin talar minna um þá hættu sem af þeirri vangetu hennar stafar. Hún ætti þó að sjá að eðlisþyngd varnaðarorða ASÍ er margföld við það rými sem þau hafa fengið í fjölmiðlum.

Af öllu þessu má draga þá ályktun að ekki verður dregið að brjóta upp þá pólitísku stöðu sem nú hindrar svo augljóslega endurreisnina.

Minnisblöð og alþjóðatengsl

Einhverjir í bandaríska stjórnkerfinu sáu ástæðu til að leka minnisblaði sem sendifulltrúi þess hér hafði skrifað eftir samtöl við nokkra diplómata í utanríkisþjónustunni. Minnisblaðið vakti athygli fyrir tungutak. Stundum er nauðsynlegt að diplómatar noti annað tungutak en lærist í forskriftarbókum hefðarsiðfræðinnar.

Þetta minnisblað hefði hins vegar átt að vekja umræðu um aðra og alvarlegri hluti en tungutak. Birting þess afhjúpar á afar einfaldan hátt pólitíska einangrun Íslands í samfélagi þjóðanna. Hún rifjar upp þá nöpru staðreynd að fulltrúar Seðlabankans gengu bónleiðir til búðar í Seðlabanka Bandaríkjanna fyrir tveimur árum. Á sama tíma fengu seðlabankar annarra Norðurlanda bæði áheyrn og úrlausn.

Ástæðan er ekki sú að umheimurinn hafi snúist gegn Íslandi og gert Íslendinga að óvinum sínum. Við þurfum að líta í eigin barm og spyrja hvort rétt stöðumat hafi ráðið afstöðu okkar til alþjóðasamskipta á liðnum áratug. Það á bæði við um Bandaríkin og Evrópu.

Það er oflátungsháttur að halda að með einu samtali sé unnt að stilla öðrum þjóðum upp við vegg þegar allt er komið í óefni og sagt þeim að koma til bjargar. Skilningur á sérstökum aðstæðum byggist aðeins upp með langvarandi gagnkvæmum samskiptum þar sem báðir aðilar leggja sitt af mörkum.

Aðeins með því að rækta þann jarðveg varðveitum við raunverulegt fullveldi þjóðarinnar í alþjóðasamfélaginu. Endurreisnin kallar á endurmat á því hvernig við nálgumst utanríkispólitísk viðfangsefni. Við þurfum að koma ár okkar betur fyrir borð á ný.

Það er misskilningur að þeir séu mestir Íslendingar sem tala af mestu stærilæti í garð annarra þjóða eins og tilhneiging hefur verið til. Hitt er farsælla að þróa og taka ný skref í fjölþjóðasamstarfi Evrópuþjóða á þeim grunni sem lagður var fyrir sextíu árum.




Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök ţarf ađ sanna

Paul Larsson, prófessor viđ Lögregluháskólann í Ósló, ráđlagđi Íslendingum í samtali viđ F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu ţarf ađ undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Ţeir starfa samkvćmt námskrá ţannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigđisţjónustu

Ţađ hefur líklega ekki fariđ fram hjá neinum hérlendis ađ ţjónusta heilbrigđisstarfsfólks,...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Ţjóđaratkvćđi um stjórnleysi