Hársbreidd frá því að vera andlit Icesave í Hollandi 5. mars 2010 06:00 Hjúkk! Erling Jóhannesson var fenginn til að leika í auglýsingu fyrir Icesave í Hollandi sem var svo aldrei framleidd. Hann fær stundum martraðir um auglýsinguna. Hjálmar Hjálmarsson mætti einnig í prufu og segir að það hefði verið rosalegt að vera Icesave-maðurinn. „
Ég vissi ekki hvort ég var að fara að auglýsa íspinna eða bankareikninga,“ segir leikarinn Erling Jóhannesson. Erling var valinn úr stórum hópi íslenskra leikara til að leika í auglýsingu fyrir Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu fóru prufurnar fram í maí árið 2008, aðeins nokkrum mánuðum fyrir bankahrun. Felix Bergsson var einn af þeim sem komu til greina í upphafi ásamt Hjálmari Hjálmarssyni og fjölmörgum öðrum leikurum. Segja má að Erling hafi sloppið fyrir horn því auglýsingin var aldrei framleidd. „Ég var hársbreidd frá því að vera andlit Icesave í Amsterdam,“ segir hann og dæsir. Icesave-málið hefur hangið yfir Íslendingum frá því að bankarnir hrundu og virðist engan endi ætla að taka. Kosið verður um samning tvö á laugardaginn og samninganefnd hefur verið í London síðustu daga í viðræðum við Breta og Hollendinga. Handrit auglýsingarinnar fjallaði um listamann sem var að höggva einhvers konar ísskúlptúr. Svo var þeim skilaboðum komið á framfæri að vextir Icesave-reikninganna væru betri en gengur og gerist vegna þess að Íslendingar væru svo klárir. Loks átti Gunnar Þórðarson, eða einhver annar íslenskur tónlistarmaður, að vera frosinn inni í ísklumpinum. Erling segir íslenskan rembing af mjög sérstakri sort hafa verið einkennandi. „Það var verið að segja við værum svo ísköld og skapandi – traust og klár,“ segir hann. „En umfram allt svo hipp og kúl. Þetta var ekki gott, en eins og allir aðrir sá maður háan tékka úti við sjóndeildarhringinn, sem réttlætti allt.“ Spurður hvort hann prísi sig sælan í dag segist Erling hrökkva upp um miðjar nætur með svitaperlur á enninu. „Ég sé sjálfan mig frosinn inni í ísklumpi á aðaltorginu í Amsterdam þar sem hollenskir innistæðueigendur fá að koma með ísöxi og berja utan af mér smátt og smátt,“ segir hann í laufléttum dúr. Hjálmar Hjálmarsson mætti einnig í prufu fyrir auglýsinguna og er ánægður með að hún fór ekki lengra. „Ég sá alveg fyrir mér risastór auglýsingaskilti í Hollandi. Það hefði verið rosalegt að vera Icesave-maðurinn,“ segir hann. „Þetta rifjast upp öðru hverju – ég er bara feginn.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira