Þrjú ungmenni svipt sig lífi í Hafnarfirði 15. mars 2010 18:42
Vaxandi vanlíðunar gætir í samfélaginu. Nauðsynlegt er að fólk sýni náunga sínum hlýhug, ekki síst börnum og ungmennum, segir prestur í Hafnarfjarðarkirkju. Þrjú ungmenni úr bænum hafa svipt sig lífi á árinu. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir ástandið í Hafnarfirði hafa verið mjög erfitt frá áramótum vegna þeirra voveiflegu atburða sem þar hafa orðið. Djúp sorg ríki þar en um leið ríkur samhugur. "Ég hef komið að þessu inn í skólunum, bæði með því að tala við börnin og við foreldrana. Við erum svo með minningarstund í kirkjunni," segir Þórhallur. Hann segir félagsmála- og skólayfirvöld auk þess hafa reynt að vinna að því að þjappa fólki saman og reyna eftir fremsta megni að draga úr vanlíðan fólks. Hann segir að undanfarin misseri hafi orðið margföldun í kirkjusókn í Hafnarfirði sem og annars staðar, þá bæði í messu og barnastarfi. Þórhallur segir að hann finni vel fyrir vaxandi áhyggjum fólks. "Ég hef fundið það undanfarið ár, og kannski aldrei meira en núna, að það er sama hvar maður kemur fólk hefur mikla þörf fyrir að tjá sig um það sem leitar á hugann. Það er mikill kvíði og áhyggjur í samfélaginu. Margir ætluðu fyrst að að reyna setja undir sig hausinn og standa erfiðleikana af sér eins og sannir Íslendingar en maður finnur að fólki þykir orðið erfitt að sjá fyrir endann á vandamálunum," segir hann og segir að þar með komi vandinn smám saman meira upp á yfirborðið. Hann hvetur fólk sem líður illa að leita sér aðstoðar, svo sem hjá vinum, sálfræðing, lækni, presti, Hjálparsíma Rauða krossins. Þá minnir hann á mikilvægi þess að fólk gefi líðan barna og unglinga gaum og reyni að styrkja þau.
Mest lesið Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Sjá meira