Nýju kaupleigukerfi komið á fót hjá Íbúðalánasjóði 17. mars 2010 15:13 Fyrirhugaðar aðgerðir voru kynntar á blaðamannafundi í dag.
Nýju kaupleigukerfi verður komið á fót hjá Íbúðalánasjóði vegna eigna sem sjóðurinn á nú þegar. Leigu- og kaupréttur fólks verður tryggður og betri lög verða sett um húsnæðissamvinnufélög. Þá verða teknar upp húsnæðisbætur í stað vaxta- og húsaleigubóta.Framangreint er meðal þess sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar til að bæta stöðu heimilanna vegna kreppunnar. Þá verða lög um greiðsluaðlögun stórbætt með nýju frumvarpi sem eftirleiðis verður félagslegt úrræði en ekki „vægara" form gjaldþrots.Tillögur ríkisstjórnarinnar voru kynntar á blaðamannafundi í dag. Samkvæmt þeim munu fleiri hafa rétt á greiðsluaðlögun og verður nú eitt kerfi fyrir allar kröfur. Með þessu er samningsstaða lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum bætt. Samhliða nýju greiðsluaðlögunarfrumvarpi verður sett á fót embætti umboðsmanns skuldara sem byggt verður á traustum grunni Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Umboðsmaðurinn verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum og er ekki hlutlaus. Fjölmargar nýjungar sem bæta stöðu lántakenda enn frekar voru kynntar. Meðal þess helsta eru:Sérstök úrræði fyrir þá sem eru tekjulágir eða hafa orðið fyrir tímabundnu tekjufalli.Úrræði fyrir fólk með tvær eignir.Enn lægra hámark á dráttarvexti .Við nauðungarsölur verður markaðsvirði eigna dregið frá kröfu.Fólki gert kleift að búa í húsnæði í 12 mánuði þrátt fyrir nauðungarsölu/gjaldþrot.Hámarksfjárhæðir innheimtukostnaðar takmarkaðar enn frekar.Reglur um niðurfellingu skattkrafna endurskoðaðar.Hóflegar skuldbreytingar skattfrjálsar.Stórfelldar niðurfellingar skattlagðar.Dregið úr vægi verðtryggingar.„Við þær sviptingar sem orðið hafa á lána- og húsnæðismarkaði er ljóst að horfa verður til framtíðar. Því mun verða lögð fram heildstæð húsnæðisstefna til framtíðar á vormánuðum, sem byggir á þremur stoðum: eigna-, búseturéttar- og leiguleið," segir í tilkynningu um málið.Nú þegar hafa um 60-80 þúsund manns notið úrræðanna og áður en árið er liðið er reiknað með að hækkaðar vaxtabætur og útborganir séreignarsparnaðar vegna úrræða ríkisstjórnarinnar nemi um 40 milljörðum króna.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Sjá meira