Hæstiréttur sýknar lögmann af ákæru um fjársvik Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. mars 2010 16:30 Karl Georg Sigurbjörnsson við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi.
Hæstiréttur sýknaði í dag Karl Georg Sigurbjörnsson lögmann sem ákærður var fyrir að hafa blekkt Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda til að selja stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar á 25 milljónir hvert í stað 45 milljóna. Karl Georg var ákærður fyrir að hagnýta sér „ranga hugmynd" Sigurðar um hámarkverð á bréfunum. Karl var ákærður fyrir að hafa greitt 25 milljónir fyrir hvert bréf. Félagið A. holding í Lúxemborg sem var í eigu Baugs seldi bréfin síðan á 45 milljónir hvert bréf. Héraðsdómur hafði áður sýknað Karl Georg af sömu ákæru. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar hjá Ríkislögreglustjóra, áfrýjaði málinu til Hæstaréttar. Málinu er hinsvegar ekki alveg lokið því skiptastjóri Baugs hefur stefnt Karli Georgi fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna tíu milljón króna greiðslu sem hann fékk frá Baugi. Litið er á greiðsluna sem gjafagjörning af hálfu þrotabús Baugs og farið fram á riftun þess vegna. Rökin eru helst þau að Baugur hafi ekki haft neina skyldu til þess að greiða Karli Georg þessa upphæð. Sjálfur á Karl Georg að hafa farið fram á þennan pening sem miskabætur fyrir þær hremmingar sem hann taldi sig hafa lent í vegna stofnfjárkaupanna og refsimálsins sem hann hefur nú verið sýknaður af.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira