Merkel ýjar að brottrekstri Grikklands Óli Tynes skrifar 18. mars 2010 11:35 Angela Merkel kanslari Þýskalands.
Evrópusambandið heldur áfram að vandræðast með Grikkland. Þjóðarleiðtogar þess slá í og úr um hvort landinu verði hjálpað. Aðildarríki sem eru utan evrusvæðisins líta ekki á þetta sem sitt vandamál. Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands hefur þannig sagt að ekki komi til greina að senda fé til Grikklands. Mest hefur verið horft til Þýskalands sem hefur stærsta hagkerfi sambandsins. Mikill meirihluti almennings þar í landi er hinsvegar á móti því að aðstoða og er ýmislegt týnt til. Til dæmis það að eftirlaunaaldur í Grikklandi er 63 ár og grískur almenningur tekur ekki í mál að hann verði hækkaður. Þjóðverjar segja sem svo að þeir hafi engan áhuga á að senda peninga til Grikklands til þess að Grikkir geti hætt að vinna mörgum árum fyrr en þeir sjálfir. Angela Merkel kanslari hefur verið tvíræð í þessu máli. Hún hefur lýst vilja til að hjálpa Grikkjum en er auðvitað meðvituð um skoðanir kjósenda sinna. Hún hefur því einnig skotið föstum skotum á Grikki. Lengst gekk hún líklega í gær þegar hún sagði að lönd sem ekki fylgdu reglum evrusvæðisins ættu að vera brottræk. Enginn vafi er á að þar átti hún við Grikkland. Samkvæmt reglum fá lönd ekki aðgang að myntbandalaginu nema halli ríkissjóðs sé undir þrem prósentum af þjóðarframleiðslu. Það hefur verið upplýst að Grikkir beittu brögðum til þess að fela hina raunverulegu stöðu ríkisfjármála hjá sér. Þeir töldu sér til tekna ýmsa liði sem hvergi í heiminum eru reiknaðir inn í ríkisfjármál.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Sjá meira