Tortíming á orðstír Íslands stoppar IceCell 18. mars 2010 11:30
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að afturkalla starfsleyfi IceCell fyrir uppsetningu á farsímakerfi á Íslandi. IceCell segir að tortíming á orðstír Íslands hafi gert félaginu ómögulegt að fjármagna þetta verkefni. Í úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunnar segir að fyrir liggur að IceCell hefur ekki staðið við skilyrði og skuldbindingar þær sem í tíðniheimildinni felast um uppbyggingu kerfisins og tímamörk þar að lútandi. En samkvæmt tíðniheimildinni átti 1. áfanga uppbyggingarinnar að vera lokið 28. desember 2008. Þá hefur IceCell heldur ekki staðið við önnur tímamörk sem sett hafa verið af hálfu Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem komið hefur verið á móts við fyrirtækið varðandi uppbyggingarhraða farsímanetsins og fjölda þeirra senda sem krafist hefur verið uppsetningu á...þar sem kveðið var á um uppsetningu á 40 sendum fyrir 15. ágúst 2009, né eigin framkvæmdaráætlun fyrirtækisins, dags. 27. nóvember 2009, en samkvæmt henni átti uppsetningu 10 senda að vera lokið fyrir 1. janúar 2010 og 40 senda fyrir 1. apríl 2010, sbr. úttekt Póst- og fjarskiptastofnunar dags. 25. janúar s.l., sem vikið er að hér að ofan. Það er álit Póst- og fjarskiptastofnunar að stofnunin hafi sýnt mikla biðlund og gengið eins langt og lög standa til, í því skyni að koma til móts við þarfir IceCell og möguleika fyrirtækisins til að standa við tímamörk um uppbyggingu farsímanetsins. Í ljósi alls þessa telur stofnunin að litlar sem engar líkur séu nú á því að fyrirtækið geti staðið við skilyrði tíðniheimildarinnar og gildi þá einu þótt slakað yrði á þeim kröfum um uppbygginu og útbreiðslu farsímanets fyrirtækisins sem nú er að finna í tíðniheimildinni. Ljóst er einnig að jafnræði aðila á markaði kann að vera skert ef gengið yrði lengra en nú þegar hefur verið gert varðandi tilslakanir á upprunalegum kröfum um uppbyggingu farsímanets fyrirtækisins. „Fjármálakreppan á Íslandi hefur spillt áformum okkar frá upphafi. Uppbygging IceCell krefst 14,25 milljóna evra samkvæmt útreikningum okkar. Þar sem uppbygging farsímanets er þekkt viðskiptaverkefni á heimsvísu, vanmat ég mikið þann tíma sem þarf til að fjármagna IceCell svo vel sé," segir í svarbréfi IceCell við athugasemdum Póst- og fjarskiptastofnunnar. „Tækniskipulagið er eiginlega tilbúið en fjármögnunin hefur verið algerlega frosin í 2 ár einfaldlega vegna þess að alheimsfjármálakreppan hefur tortímt orðstír Íslands í heiminum. Nær enginn vill eiga viðskipti við Ísland og er það aðalvandamálið. Þeir sem sjá tækifæri á Íslandi hafa fest fé sitt annars staðar og gengið vel en það er vandamál númer tvö."
Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira