Skipulögð leit að krabbameini tryggð til næstu ára 19. mars 2010 15:57 Samningurinn undirritaður.
Þjónustusamningur milli Krabbameinsfélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um skipulagða leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna var undirritaður í GÆR í aðalstöðvum Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra var viðstödd undirritunina og staðfesti samninginn. Þetta er fimmti samningurinn sem gerður er milli Krabbameinsfélagsins og stjórnvalda um þessa þjónustu en sá fyrsti var gerður 1988, að fram kemur í tilkynningu. Næstu fimm árin verður konum á aldrinum 20 til 69 ára boðið að koma til leitar að krabbameini í leghálsi með tveggja til fjögurra ára millibili eftir viðmiðum samningsins. Fram kemur í tilkynningunni að gert sé ráð fyrir að gerðar verði um 23.500 slíkar skoðanir á ári. Brjóstakrabbameinsleit með myndatöku verður boðin konum á aldrinum 40 til 69 ára á tveggja ára fresti og er áætlaður fjöldi skoðana um 13.500 árlega. „Samstarfið við Krabbameinsfélagið hefur verið mjög árangursríkt og með þessum samningi er félaginu tryggt fjármagn næstu árin til að sinna krabbameinsleitinni áfram," er haft eftir Álfheiði Ingadóttur, heilbrigðisráðherra, í tilkynningunni. „Ísland er fremst í röð hvað varðar bæði forvarnir og meðhöndlun á krabbameini og viljum við tryggja áframhaldandi góða þjónustu í þeim efnum." „Tilgangur leitarinnar er að draga úr sjúkdómum af völdum krabbameina í brjóstum og leghálsi og fækka dauðsföllum af þeirra völdum," segir Ragnheiður Haraldsdóttir, nýráðinn forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, og bætir við að árangur leitar hafi verið mjög góður á Íslandi undanfarin ár.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira