Steinunn Valdís: Minntist aldrei á Geira í Goldfinger 19. mars 2010 13:03 „
Líklega þarf nú að nefna fólk á nafn til að það geti kært aðra fyrir meiðyrði," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis, en Ásgeir Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Goldfinger, íhugar að kæra hana eftir að hún lét þau orð falla að nektardansstaðir hýstu oft mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Nokkur hundruð ungar erlendar stúlkur koma hingað til lands á hverju ári til að sýna nektardans. Allsherjarnefnd Alþingis samþykkti í vikunni frumvarp þar sem lagt er til að nektarsýningar í atvinnuskyni verði bannaðar. Steinunn Valdís sagði í fréttum Stöðvar 2 að ekki væri vilji til að hafa þessa starfsemi hér á landi þar sem vitað væri að hún hefði í för með sér mansal og skipulagðra glæpastarfsemi. Ásgeir Davíðsson, jafnan kallaður Geiri og kenndur við Goldfinger, segir í viðtali við DV í dag að hann hljóti að kæra þessi ummæli þar sem hann telji að um meiðyrði hafi verið að ræða Hann hafi þegar rætt við lögmann vegna málsins enda sé hann afar ósáttur við að vera bendlaður við alþjóðlega glæpastarfsemi. Í samtali við fréttastofu í dag segir Steinunn Valdís að fullyrðingar sínar um tengsl nektardansstaða við skipulagða glæpi séu byggðar á fjölda erlendra rannsókna og skýrslna sem flestum ætti að vera í lófa lagið að kynna sér. Telji Ásgeir að brotið hafi verið á sér eigi hann að vitanlega að leita réttar síns, til dæmis með því að fara í mál. Hún telji hins vegar að til þess þurfi viðkomandi að hafa verið nefndur á nafn. Ásgeir hafi hún aldrei nefnt í tengslum við þessa starfsemi.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira