Innlent

Fangi kveikti í rúmdýnu á Litla-Hrauni

Fangi á Litla Hrauni kveikti í rúmdýnu í klefa sínum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að samfangi hans í klefanum fékk snert af reykeitrun.

Viðvörunarkerfi fór í gang og náðu fangaverðir með snarræði að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á vettvang. Sjúkraflutningamenn veittu samfanganum viðeigandi meðferð með súrefnisgjöf og var haft eftirlit með honum í nótt.

Mál þess sem kveikti í er litið mjög alvarlegum augum, enda stefndi hann lífi samfanga síns í bráða hættu með athæfinu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×