Innlent

Pálmi hefur stefnt fréttamanni RÚV

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Pálmi Haraldsson fjárfestir er búinn að stefna fréttamanni RÚV. Mynd/ Vilhelm.
Pálmi Haraldsson fjárfestir er búinn að stefna fréttamanni RÚV. Mynd/ Vilhelm.
Pálmi Haraldsson fjárfestir hefur stefnt Svavari Halldórssyni, fréttamanni á fréttastofu RÚV, vegna fréttar af málefnum Fons, eignarhaldsfélagi Pálma.

Fréttastofa RÚV sagði frá því seinni partinn í mars að Pálmi Haraldsson hafi fengið tveggja og hálfs milljarða króna lán frá Glitni rétt fyrir hrun gegn skuldaviðurkenningu í Baugi. Bankinn hafi ekkert fengið greitt og peningarnir væru týndir.

Pálmi gerði athugasemd við fréttina eins og kom fram í fjölmiðlum, meðal annars á fréttavefnum Pressunni, eftir að fréttin birtist. Þar kom fram að hann hygðist stefna fréttamanninum, yrði fréttin ekki dregin til baka. Eftir því sem Vísir kemst næst er lögmaður Pálma nú búinn að gefa stefnuna út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×