Erlent

Versta parkering sögunnar?

Óli Tynes skrifar

Sextíu og tveggja ára gömul kanadisk kona hefur fengið fimmhundruð dollara sekt fyrir verstu parkeringu sögunnar.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynbandi stakk sú gamla af eftir að hafa klesst tvo bíla við að reyna að leggja BMW jeppanum sínum.

Því miður fyrir hana var hægt að hafa upp á jeppanum og finna hana. Auk sektarinnar fyrir að stinga af þurfti konan að borga viðgerð á bílnum sem hún klessti.

Og auk þess var henni bannað að keyra frá klukkan sjö á kvöldin til sjö á morgnana.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×