Innlent

Þjófar handteknir

Mynd/Pjetur
Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu handtóku í nótt tvo unga menn sem voru að brjótast inn í bíl við Langholtsveg í Reykjavík. Við leit í bíl þeirra fannst ýmislegt góss, sem reyndist vera úr innbroti í þrjá bíla á bílasölu við Bíldshöfða fyrr um nóttina. Þar höfðu þjófarnir brotið rúður í bílunum, rifið úr þeim útvörp og hljómtæki, og stolið fleiri verðmætum.

Þeir eru hinsvegar ófundnir þjófarnir, sem brutust inn í fyrirtæki við Höfðabakka í nótt og stálu þaðan tölvubúnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×