Innlent

Fjölda nemenda neitað um skólavist

verzlunarskólinn Flestir sóttu um að komast í Verzlunarskóla Íslands, en hann var jafnframt sá skóli sem þurfti að hafna flestum nemendum. fréttablaðið/hörður
verzlunarskólinn Flestir sóttu um að komast í Verzlunarskóla Íslands, en hann var jafnframt sá skóli sem þurfti að hafna flestum nemendum. fréttablaðið/hörður

Aldrei hefur hærra hlutfall grunnskólanema sótt um nám í framhaldsskóla og í vor. Rúmlega 97 prósent allra 10. bekkinga sem útskrifuðust úr grunnskóla á dögunum sóttu um áframhaldandi nám í framhaldsskólum landsins.

Alls sóttu 4.477 10.-bekkingar um skólavist nú, en þeir voru 4.437 í fyrra. Það var þá met. Líkt og í fyrra komast ekki allir inn í skóla í fyrstu atrennu, en 217 nemendur standa út af. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segist vonast til að öllum nemendunum verði fundið pláss í skóla fyrir lok mánaðarins. Erfiðast sé að finna pláss á höfuðborgarsvæðinu, sem sé sami vandi og undanfarin ár.

Síðustu ár hefur hópur nemenda, sem ekki komst inn í fyrstu atrennu, verið í óvissu fram eftir sumri. Í ár var innritun breytt, forinnritun var í apríl og var því hægt að bregðast fyrr við vandanum að einhverju leyti, samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu. Tekinn var upp forgangur á svæðum, þannig að framhaldsskólar þurftu að taka frá 45 prósent sinna plássa fyrir grunnskólanema úr grenndarskólum. Áhrifin af því eru ekki fyllilega komin í ljós, en Katrín segir ráðuneytið allavega ekki hafa fengið neinar slæmar fregnir af því.

Langflestir sóttu um nám í Verzlunarskóla Íslands, eða 428 manns. Næstvinsælastur er Menntaskólinn við Hamrahlíð, en um skólavist þar sóttu 319. Í þriðja sæti var svo Menntaskólinn við Sund, Borgarholtsskóli var fjórði vinsælasti skólinn og Menntaskólinn í Reykjavík sá fimmti.

Níu skólar þurfa að neita einhverjum þeirra sem sóttu um skólavist.

Verzlunarskóli Íslands þarf að neita flestum nemendum um skólavist, en þar sóttu 120 fleiri um skólann en pláss er fyrir. Kvennaskólinn í Reykjavík þarf að hafna 104 nemendum, Menntaskólinn við Hamrahlíð 74 og Menntaskólinn við Sund og Menntaskólinn í Reykjavík 57 nemendum. Tækniskólinn, Framhaldsskólinn á Laugum, Menntaskólinn að Laugarvatni og Menntaskólinn á Akureyri þurftu að hafna á bilinu tveimur til tólf nemendum.

thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×