Viðskipti innlent

Stjórnvöld lofa Strauss-Kahn að fara ekki í flatar afskriftir

Stjórnvöld útiloka flatar afskriftir á skuldum heimila landsins. Þá verður ekki boðið upp á frekari úrræði til handa skuldugum heimilum. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu forsætisráðherra, fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra og seðlabankastjóra til Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Þar segir að áhersla verði lögð á að einfalda þau úrræði sem þegar séu til staðar og gera þau skilvirkari. Í viljayfirlýsingunni segir orðrétt: „Við erum staðráðin í að einfalda skuldaleiðréttingarferlið en höfum útilokað almenna leiðréttingu skulda (t.d. leiðréttingu á skuldum þeirra sem dómur Hæstaréttar um gengistryggð lán snertir ekki)." Rökin fyrir þessu eru þau að flatar afskriftir yrðu of kostnaðarsamar fyrir ríkið, mikilvægt sé að viðhalda stöðugleika bankakerfisins og þá geti flatar afskriftir haft skaðleg áhrif á greiðsluvilja þjóðarinnar og viðhorf til skulda. Í viljayfirlýsingunni kemur fram að stjórnvöld muni einbeita sér að heimilum sem eru í verstri stöðu, en þau séu sem betur fer í minnihluta.

AGS fagnar afléttingu á frestumn

Þá segir í viljayfirlýsingunni að stofnun embættis umboðsmanns skuldara hafi verið lokaskrefið í áætlun stjórnvalda þegar kemur að skuldavanda heimila. Nú verði lögð áhersla á að kynna þau fjölmörgu úrræði sem í boði eru og útskýra þau. Í orðsendingu frá starfsmönnum sjóðsins er því fagnað að frestun nauðungaruppboða verði aflétt í lok október.

Starfsmenn sjóðsins segjast þó hafa áhyggjur af því að stjórnvöld hafi ekki haldið niðri væntingum um frekari úrræði til handa skuldugum heimilum. Stjórnvöld þurfi að senda út skýr skilaboð til um að frekari úrræði verði ekki í boði, sérstaklega í ljósi nýgengins dóms Hæstaréttar.


















Tengdar fréttir

Íbúðalánasjóður þarf tugi milljarða

Ríkið þarf að leggja Íbúðalánasjóði til á bilinu 30 til 45 milljarða í lok ársins. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar AGS. Þar segir að bráðabirgðamat sérfræðinga sýni að Íbúðalánasjóður þurfi framlag upp á 2 til 3% af landsframleiðslu til að eigið fé sjóðsins haldist yfir lágmarkskröfum.

AGS: Gengisdómar kosta ríkissjóð rúma 20 milljarða

Ríkið þarf væntanlega að leggja bönkunum til yfir 20 milljarða króna vegna dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Í skýrslunni segir að bankarnir hafi ekki búist við að gengistryggð lán yrðu dæmd ólögmæt í Hæstarétti.

Icesave samkomulag í sjónmáli

Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að viðræður við Breta og Hollendinga um lausn Icesave deilunnar hafi verið árangusríkar á síðustu vikum og stefni allt í að samkomulag náist í málinu. Viðræðurnar snúist um á hvaða kjörum endurgreiðsla til breska og hollenska ríkisins vegna lágmarkstryggingar á Icesave innistæðum fari fram.

AGS: Hagvöxtur 3% á næsta ári

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir 3% hagvexti á Íslandi á næsta ári og telur að verðbólga haldi áfram að hjaðna. Spáir sjóðurinn því að tólf mánaða verðbólga verði komin niður fyrir 5% í lok næsta árs. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar sjóðsins í kjölfar þriðju endurskoðunar á efnahagsáætlun Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×