Eitt hleðslutæki í alla farsíma 5. janúar 2011 07:00 Á vef ESB kemur fram að tíu farsímaframleiðendur hafa samþykkt að nota micro-usb tengi til gagnaflutninga og hleðslu rafhlaðna. Fréttablaðið/Valli
Áður en langt um líður gætu allir farsímar notað eins hleðslutæki, að því er fram kemur í breska blaðinu Telegraph. Þar er fjallað um nýjan staðal sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur ákveðið að skuli vera ráðandi. Helstu farsímaframleiðendur samþykktu sumarið 2009 að stefna í þessa átt. Í tilkynningu framkvæmdastjórnar ESB kemur fram að í byrjun hafi tíu framleiðendur samþykkt að micro-USB tækni verði ráðandi við hleðslu rafhlaðna og gagnaflutninga. Þar á meðal eru framleiðendur á borð við Apple, Motorola, Nokia, Qualcomm, Research In Motion (Blackberry), Samsung og Sony Ericsson. Telegraph hefur eftir talsmanni framkvæmdastjórnarinnar að fyrstu tækin sem uppfylla nýjan staðal að fullu verði fáanleg í byrjun næsta árs, en micro-USB tengi eru nú þegar nokkuð algeng í svokölluðum snjallsímum. Stöðluð hleðslutæki eiga svo að gera notendum lífið auðveldara, draga úr sorpi og styðja við farsímaiðnaðinn. Töluverður umhverfisávinningur er sagður vera í því að nota samhæfð hleðslutæki, enda á þá að sjá fyrir endann á að gömul hleðslutæki hrannist upp til förgunar í hvert sinn sem fólk skiptir um farsíma.- óká
Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira