Innlent

Guðbjarti dauðbrá við lestur ofbeldisskýrslu

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ávarpaði fjölmennt Jafnréttisþing á Hilton Nordica í gær.  fréttablaðið/gva
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ávarpaði fjölmennt Jafnréttisþing á Hilton Nordica í gær. fréttablaðið/gva
Ekki hefur miðað sem skyldi við útrýmingu launamunar kynjanna og í ofbeldismálum gegn konum ættum við að vera að gera mun betur. Þetta kom fram í máli Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á fjölmennu Jafnréttisþingi í gær. Ráðherrann kynnti skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála hér á landi.

Meðal þess sem fjallað er um í skýrslu ráðherrans er þróun kynbundins launamunar, atvinnuþátttaka og stjórnmálaþátttaka kynjanna og kynjahlutfall í opinberum nefndum. Aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, heilbrigðismál og menntamál eru líka ræddar.

Mikill þungi verður lagður í störf ráðherranefndar um jafnrétti kynjanna að sögn Guðbjarts. Nefndin á að samþætta kynja- og jafnréttismál í stefnumörkun og aðgerðum ríkisstjórnarinnar og fylgja eftir framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum.

Í erindi ráðherra í gær kom fram að dregið hefur saman með kynjunum hvað atvinnuleysi varðar. Fyrst urðu karlar atvinnulausir við hrun í byggingariðnaðinum. Síðan hefur hlutfallið jafnast út, atvinnulausum konum hefur fjölgað en körlum fækkað. Í desember síðastliðnum voru 7,3 prósent kvenna atvinnulaus en 8,5 prósent karla.

Guðbjartur segir að umræður á Alþingi um verkefni um kynjaða fjárlagagerð hafi verið undarlegar að mörgu leyti. Verkefnið sé mikilvægt. Settir verði upp mælikvarðar á það hvernig ákvarðanir í fjárlagagerð hafi áhrif á kynin.

„Manni dauðbrá þegar ég fékk skýrsluna sem er nýkomin út varðandi ofbeldi gegn konum og í nánum samböndum,“ sagði Guðbjartur í gær. Á hann þar við niðurstöður rannsókna sem kynntar voru í janúar, þar sem fram kom að rúm 22 prósent kvenna sögðust hafa verið beitt ofbeldi í nánu sambandi einhvern tímann frá 16 ára aldri. „Þetta eru allt saman tölur sem eiga að vera okkur alvarleg áminning um að við verðum að gera miklu betur.“

Fimm önnur erindi voru flutt á Jafnréttisþingi í gær auk þess sem sex málstofur voru starfræktar og umræður fóru fram um hvert stjórnvöld eigi að stefna. Velferðarráðherra lagði áherslu á að þingið væri mikilvægur vettvangur fyrir fólk til að hafa áhrif á stefnu í jafnréttismálum.

thorunn@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×