Makedónía tryggði sér fimmta sætið og sæti í ÓL-umspilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2012 15:53 Makedóníumenn fagna. Mynd/Nordic Photos/Getty
Makedóníumenn tryggðu sér fimmta sæti á EM í handbolta í Serbíu með því að vinna eins marka sigur á Slóvenum, 28-27, í leiknum um 5. sætið á mótinu. Sætið gefur Makedóníu líka sæti í umspili Ólympíuleikanna í vor en Slóvenar gætu einnig komist þangað verði Serbar Evrópumeistarar á sunnudaginn. Kiril Lazarov skoraði átta mörk fyrir Makedóníumenn og tryggði sér bæði markakóngstitilinn og setti nýtt markamet í úrslitakeppni EM. Hann skoraði 61 mark í mótinu og bætti markamet Ólafs Stefánssonar frá EM 2002 um þrjú mörk. Stojance Stoilov skoraði 6 mörk og hinn 39 ára gamli Stevce Alusevski var með 4 mörk. Jure Dolenec skoraði 7 mörk fyrir Slóvena og Luka Zvizej var með 6 mörk. Primoz Prost átti frábæra innkomu í markið undir lokin og varði 6 af 9 skotum sem komu á hann. Makedónía náði frumkvæðinu strax í upphafi, komst í 5-2 og 9-5 og var síðan með fjögurra marka forskot í hálfleik, 16-12. Makedónía skoraði síðan fyrsta mark seinni hálfleiksins og var því komið með fimm marka forskot. Slóvenska liðið vaknaði þá af værum blundi, vann næstu tíu mínútur 8-1 og var allt í einu komið tveimur mörkum yfir, 20-18. Makedóníumenn voru hinsvegar snöggir að snúa leiknum og voru aftur komnir með þriggja marka forskot, 25-22, þegar tæpar tólf mínútur voru eftir af leiknum. Kiril Lazarov skoraði hvert markið á fætur öðru á þessum kafla og náði þarna að bæta tíu ára markamet Ólafs Stefánssonar í úrslitakeppni EM. Slóvenar komu muninum niður í eitt mark. 26-25, þegar sex mínútur voru eftir og lokamínúturnar voru æsispennandi. Slóvenar náði aftur á móti aldrei að jafna leikinn og Borko Ristovski tryggði Makedóníumönnum sigurinn með því að verja lokaskot Slóvenana í leiknum.
Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira