Wilbek: Núna er tíminn til að vinna Spánverja | Verða enn sterkari á ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2012 22:15 Ulrik Wilbek og Mikkel Hansen. Mynd/AFP
Ulrik Wilbek, þjálfari danska landsliðsins, sér fram á mjög erfiðan undanúrslitaleik á móti Spánverjum á morgun. Hann segir jafnframt að spænska liðið eigi eftir að verða enn sterkara á Ólympíuleikunum þegar Spánverjar fá inn tvo sterka leikmenn. „Þetta er líklega það lið á mótinu sem hefur sýnt mestan stöðugleika og þeir eru líka það lið sem er með mestu breiddina," sagði Ulrik Wilbek og hann talar sérstaklega um gríðarlega breidd spænska liðsins í leikstjórnendastöðunni. „Þeir skera sig úr frá öðrum liðum á mótinu í hvernig þeir spila varnarleikinn sinn. Þeir eru mjög fljótir á fótunum og klókir. Það kemst ekkert lið upp með að gera mistök á móti Spánverjum. Við áttum í miklum vandræðum með þá í undanúrslitum HM í fyrra," sagði Ulrik Wilbek en Danir komust þá í úrslitaleikinn eftir fjögurra marka sigur á Spánverjum, 28-24. Wilbek segir að Spánverjar verði enn sterkari á Ólympíuleikunum í London en liðið fær þá inn markvörðinn Arpad Sterbik og stórskyttuna Laszlo Nagy. „Núna er tíminn til að vinna Spánverja því þeir verða enn sterkari á Ólympíuleikunum. Við eigum samt góða möguleika. Þetta verður jafn og spennandi leikur á milli liða sem þekkja hvort annað mjög vel," sagði Wilbek.
Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira