Innlent

Innbrot og rúðubrot en rólegra í miðbænum

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lögreglan hafði í nógu að snúast.
Lögreglan hafði í nógu að snúast. Mynd úr safni
Síðastliðin nótt var rólegri í miðbæ Reykjavíkur en aðfaranótt laugardags. En hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var þó nóg að gera. Tvær bifreiðar voru stöðvaðar í gærkvöldi, önnur klukkan níu og hin rúmlega tíu, vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Á öðrum tímanum var maður handtekinn grunaður um rúðubrot á Skólavörðustíg. Dyraverðir á veitingastað sáu hann brjóta rúðuna, eltu hann og héldu honum þar til lögregla kom á vettvang. Var maðurinn mjög ölvaður og vistaður í fangageymslu meðan ástand hans lagaðist og hægt verður að ræða við hann. 

Í nótt var einnig tilkynnt um umferðaróhapp í Heiðmörk. Bifreið ekið út af veginum og mun hafa farið á toppinn. Ökumaðurinn var kominn heim er hann óskaði eftir sjúkrabifreið vegna vanlíðan.  Var þá fluttur á slysadeild, ekki er vitað um meiðsl og málið er í rannsókn.

Tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Kópavogi klukkan þrjú í nótt.  Ekki vitað hvort einhverju var stolið. Stuttu síðar var maður í mjög annarlegu ástandi handtekinn í Austurstræti eftir átök við dyraverði.  Maðurinn var vistaður í fangageymslu vegna ástands en er einnig grunaður um rúðubrot.

Tvær bifreiðar voru stöðvaðar, önnur í Breiðholti og hin á Bústaðarvegi, vegna gruns um ölvun við akstur.

„Eftir miðnættið var mikið um tilkynningar til lögreglu vegna hávaða í heimahúsum og ölvun en frekar fátt fólk í miðbænum,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×