Banntrúarmenn

Fréttablaðið Fastir pennar 05. desember 2011 06:00
Banntrúarmenn
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Í Sunnudagsblaði Moggans var frásögn eftir Börk Gunnarsson blaðamann þar sem segir frá framgöngu nokkurra Vantrúarmanna gagnvart stundakennara við guðfræðideild Háskóla Íslands, Bjarna Randveri Sigurvinssyni.

Þessi félagsskapur hefur vakið athygli fyrir opinskáa andúð á kristinni kirkju og kristinni kenningu og þótti sumum skemmtilegt þegar maður á þeirra vegum kom sér fyrir í miðjum prestahópi í búningi fígúru úr Stjörnustríðsmyndunum, Svarthöfða. Margt í skrifum þessara manna um presta og þjóðkirkjuna er fullt af hatri og heift og manni verður eiginlega ekki um sel að lesa sumt af því sem Börkur rekur af bloggi og spjallsíðum þessara manna.


Réttrúnaðurinn
Félagið líkist heittrúarflokki: óþolið gagnvart þeim sem aðhyllast aðrar hugmyndir virðist algert; löngunin til að niðurlægja þá sem ekki hugsa eins og vanvirða það sem öðrum er heilagt; þörfin fyrir að breiða sem víðast út hugmyndir hópsins svo að allir sjái ljósið; þörfin fyrir að vera sífellt að tala saman til að þétta raðir sínar og stappa í sig stálinu – og efast aldrei.

Hér á landi var kirkjan svo sterk um aldir að nánast er hægt að tala um nokkurs konar trúræði, teókratíu. Prestar voru andlegir leiðtogar um allt land, komu á hvert heimili og litu eftir því að allir væru læsir – og hvað fólkið læsi. Þegar maður les lýsingar manna á borð við Þórberg Þórðarson á þeim kristindómi sem iðkaður var af alþýðufólki hér á landi fram á tuttugustu öld skynjar maður að þetta hugmyndakerfi hefur verið áþján leitandi sálum.

Þannig er það með allan rétttrúnað, alla hugmyndafræði sem öllum er gert að játast undir, hversu sem hún kann að samrýmast heimsmynd og reynslu að öðru leyti.

Er kirkjan slíkt andlegt vald nú á dögum? Er boðskapur hennar jafn íþyngjandi? Því fer fjarri. Hún býður upp á samtal. En þá verður að tala við hana – ekki bara standa og öskra.


Akademískt frelsi
Meðal þeirra stofnana sem helst eru til þess fallnar að efla með fólki frjálsa hugsun eru háskólarnir. Þar innan veggja ræðir fólk hugmyndir og tileinkar sér þankagang sem jafnvel kann að virðast ankannalegur; þar skipar fólk hugmyndum sínum í margvísleg kerfi, skoðar heiminn undir ljósi ólíkra hugmynda, rökræðir – leitar. Þar er sannleikurinn fyrirheitna landið en ekki upphafsstaðurinn. Þar talar fólk saman, skrifar og rannsakar, eftir tilteknum hefðum sem ná langt aftur í aldir, og maður hefði raunar haldið að Vantrúarmenn með alla sína vísindahyggju vildu hafa í heiðri. Í háskóla þarf að ríkja frelsi og frjálslegt andrúmsloft. Þar þurfa kennarar í bókmenntafræði að geta sagt eitthvað – eða jafnvel ekki neitt – um bækurnar mínar án þess að eiga á hættu að ég komi klagandi. En þá er jafnframt grundvallaratriði að leitast sé við af fremsta megni að vanda valið á kennurum þar og að það fari fram eftir skýrum reglum við að meta hæfi þeirra. Til þess verðum við að treysta háskólunum.

Sem sagt. Það á að þurfa mikið til að grípa fram fyrir hendurnar á kennara og veita honum áminningu. Þegar kennari í guðfræðideild víkur að félagsskapnum Vantrú í tímum í guðfræði er hann væntanlega að skoða þennan félagsskap í tilteknu samhengi sinna fræða, á tiltekinn akademískan hátt eins og honum er bæði frjálst og skylt að gera í þessu umhverfi. Félagsskapurinn Vantrú hafði fregnir af því að Bjarni Randver hefði fjallað um starfsemi hans og annarra félaga. Þeir sáu þá gullið tækifæri til að gera guðfræðideild HÍ og þessum kennara alveg sérstaklega lífið leitt, sem svo sannarlega hefur tekist: Bjarni Randver situr nú uppi með mikinn lögfræðikostnað og mikla armæðu við að verjast atlögum hinna kátu félaga í Vantrú, sem samkvæmt grein Barkar virðast hafa skipulagt látlausar árásir á Bjarna til að hrekja hann úr starfi fyrir þær sakir að hafa ekki farið þeim orðum um félagsskapinn sem félagsmenn töldu tilhlýðilegt. Ekki er að sjá að Siðanefnd hafi gætt þess að Bjarni fengi sanngjarna málsmeðferð og það er ekki fyrr en Guðni Elísson, prófessor í bókmenntafræði, gengur í málið vegna þess að honum ofbýður málatilbúnaðurinn, að Bjarni fær stuðning innan veggja HÍ.

Það er alltaf hættulegt þegar hugmyndabaráttan fer yfir á svið lögfræðinnar. Það er alltaf ömurlegt þegar hópur manna hefur samráð um að ráðast að einum einstaklingi.

Vantrúarmenn krefjast af miklum tilfinningahita þess réttar síns að fá að trúa ekki á guð – þó að þess hafi ekki orðið vart að nokkur hafi bannað þeim það. Þeir hafa kannski ekki mætt þeirri mótstöðu sem þeir höfðu ef til vill vænst af hinni mildu og ögn syfjulegu þjóðkirkju sem komin er langan veg frá þeirri andlegu alræðisstofnun sem hún eitt sinn var. Í máli Bjarna Randvers virðast þeir Vantrúarmenn hafa teygt sig of langt í eftirsókn sinni eftir píslarvætti. Vopnin hafa snúist í höndum þeirra. Vantrúarmenn eru allt í einu orðnir Banntrúarmenn. Hitt er verra, að með kæru sinni, sem byggir á túlkun þeirra á glærum sem þeir komust yfir, vega þeir að akademísku frelsi fræðimanna við HÍ og leitast við að stjórna umfjöllun um sig sem þar kann að fara fram. Furðulegt er að Háskóli Íslands hafi ekki varist þessari atlögu af meiri krafti.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alþingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virðast landlægur vandi á Íslandi. Fréttablaðið ...  

Meira
Fastir pennar 09. maí. 2012 06:00

Sök þarf að sanna

Paul Larsson, prófessor við Lögregluháskólann í Ósló, ráðlagði Íslendingum í samtali við F...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Kennslu þarf að undirbúa

Leikskóli er skilgreindur sem fyrsta skólastig barna. Þeir starfa samkvæmt námskrá þannig ...  

Meira
Fastir pennar 08. maí. 2012 06:00

Auglýsingar í heilbrigðisþjónustu

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hérlendis að þjónusta heilbrigðisstarfsfólks,...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Fasteignir
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Banntrúarmenn