Lífið

Bjóða upp á dýrasta kaffibollann í New York

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Rut Hermannsdóttir hefur ekki undan að svara fyrirspurnum fjölmiðla um dýrasta kaffidrykk borgarinnar en hún var að taka á móti sjónvarpstöðvunum NBC og Al Jazeera þegar Fréttablaðið náði af henni tali.
Rut Hermannsdóttir hefur ekki undan að svara fyrirspurnum fjölmiðla um dýrasta kaffidrykk borgarinnar en hún var að taka á móti sjónvarpstöðvunum NBC og Al Jazeera þegar Fréttablaðið náði af henni tali. mynd/bryndís
„Viðtökurnar hafa verið stórkostlegar og mjög mikið að gera frá fyrsta degi,“ segir Rut Hermannsdóttir, einn þriggja eigenda Búðarinnar, kaffibar og verslun sem einblínir á norræna hönnun.

Búðin opnaði síðastliðinn föstudag en hún er staðsett í Brooklyn-hverfinu, Viðtökurnar hafa verið framar vonum og er það ekki síst fyrir þær sakir að Búðin býður upp á dýrasta kaffidrykkinn í New York.

Blaðamenn hafa flykkst á kaffibarinn þar sem boðið er upp á sérinnflutt kaffi frá Norðurlöndunum og hafa umfjallanir birst á miðlum á borð við Gothamist.com, Sprudge.com og Bedfordandbowery.com.

Dýrasti kaffidrykkurinn er svokallaður lakkríslatté með sérinnfluttu lakkríssírópi og lakkrísdufti frá danska framleiðandanum Johan Bülow. Drykkurinn seldist upp á fyrsta degi en hann kostar heila sjö dollara eða um 794 íslenskar krónur.

„Daginn eftir að við opnuðum kláraðist lakkrísinn sem er notaður kaffidrykkinn og við þurftum að hringja til Danmerkur og trufla forstjóra Johan Bülow á laugardagsnóttu til að fá þetta sent til okkar með hraði. Svo er búið að vera óveður hérna síðustu daga en ég á loksins von á sendingunni í hádeginu í dag,“ segir Rut sem hefur ekki undan að svara fyrirspurnum fjölmiðla um kaffið. 

„Við erum stöðugt að taka við sjónvarpsstöðvum og fjölmiðlum, NBC kemur í dag og Al Jazeera er að biðja um viðtal. Sem er auðvitað alveg frábær kynning fyrir okkur.“

Rut er sjálf búsett í Osló en ásamt henni eiga þau Crystal Pei og Elliot Rayman hlut í versluninni en sá síðarnefndi er yfir kaffibarnum. 

„Ég er ennþá með annan fótinn í Osló en á eftir að flytja hingað með tíð og tíma. Núna er ég hér til að koma þessum sirkús af stað.“

Hægt er að nálgast upplýsingar um Búðina á vefsíðunni Budin-nyc.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×