Innlent

Braut kajak sinn nálægt Látrabjargi

Það fer enginn róandi þarna fyrir þegar veður eru válynd svo Þresti var brugðið þegar hann heyrði af ræðaranum stíma að Bjargtanga.
Það fer enginn róandi þarna fyrir þegar veður eru válynd svo Þresti var brugðið þegar hann heyrði af ræðaranum stíma að Bjargtanga. fréttablaðið/gunnþóra
Hollenskur kajakræðari var hætt kominn eftir að hann reri frá ströndu niður við Breiðavík skammt frá Látrabjargi síðastliðinn sunnudag. Komst hann við illan leik til lands með brotinn kajak við Seljavík sem er næst við Látrabjarg.

Þröstur Reynisson, landvörður við Látrabjarg, segir að ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði hann rekið fyrir bjargið. Enginn vissi af ferðum mannsins fyrr en hjón sáu til hans í tvísýnu veðri róa undan ströndunum í átt að Látraröst sem er ein hættulegasta sjóleið við landið. Hringdu þau strax á neyðarlínuna.

Ræðarinn reri frá sandströndinni um klukkan fimm síðdegis og var þá veður með ágætum en skjótt skipast veður í lofti. Um klukkan hálf tíu hafði lögreglan á Patreksfirði samband við Þröst sem þá var staddur í Breiðavík og fór hann strax áleiðis út á Bjargtanga. „Þegar ég er um kílómetra frá Bjargtanga sé ég hann draga dótið sitt og bát upp úr fjörunni, búinn að brjóta bátinn sinn við klettótta strönd,“ segir Þröstur.

Hann segir ræðarann hafa borið sig vel eftir volkið. „Hann var farinn að huga að því hvar hann gæti slegið upp tjaldi sínu,“ segir Þröstur.

„Á sama tíma og ég komu hjónin sem höfðu séð til hans og þau voru ósköp fegin, eins og ég, að sjá að hann var lifandi. En hefðu þau ekki séð hann hefði enginn haft hugmynd um ferðir hans því þessi kajak sem hann var með var svona dúkbátur sem hægt var að pakka saman niður í tösku, og þannig kom hann með hann, og það var ástæðan fyrir því að enginn kannaðist við að það væri einhver með kajak á svæðinu.“

Það þýddi ekkert annað fyrir Þröst en að tala við kappann að hætti kjarnyrtra Vestfirðinga. „Ég sagði honum að menn gerðu þetta ekki, að fara svona út án þess að nokkur vissi af, það er svo leiðinlegt að finna bara beinin ef illa fer.“

Þröstur segist vona að fall sé fararheill en þetta var fyrsti dagur ræðarans í Vestfjarðaleiðangri hans. „Ég skutlaði honum svo í rútu sem fer til Ísafjarðar og sagði honum að hann gæti leigt kajak við Djúpið því ekki fer hann lengra á dúkbátnum.“jse@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×