Lífið

Búa til uglur úr gömlum nótnabókum

Margrét Sigrún Höskuldsdóttir er með vinnustofuna á heimilinu.
Margrét Sigrún Höskuldsdóttir er með vinnustofuna á heimilinu.
Systurnar Margrét Sigrún og Katrín Ragna Höskuldsdætur reka vefverslunina skeggi.is.

Við höfum alltaf verið að dúllast í höndunum og okkur í hug að opna vefverslun og sjá hvort einhver hefði áhuga á vörunum. Fyrst og fremst fórum við að gera hluti fyrir okkar börn en Koddakrílapælingin kom upp á yfirborðið því við vildum að börnin gætu fengið eitthvað annað en púðakríli með blá augu og hvíta húð.

Ég á sjálf tvo ættleidda syni og eitt koddakrílið lítur eiginlega bara eins út og sonur minn, “ segir Margrét Sigrún Höskuldsdóttir glöð í bragði. 

Systurnar Margrét Sigrún og Kristín Ragna Höskuldsdætur vinna sem leikskóla- og grunnskólakennarar en ákváðu í lok síðasta árs að opna vefverslunina Skeggi.is og selja handverk sitt.

„Við erum með þetta í heimahúsi og seljum á netinu og í tveimur búðum, Fiðrildinu og Púkó og smart.

Nú eru vinsælustu vörurnar okkar farnar að vera fyrir mömmurnar eða heimilið en hreindýraóróarnir hafa verið mjög vinsælir,“ segir Margrét og heldur áfram: „Við búum einnig til uglur úr gömlum nótnabókum og landakortum.

Þetta er allt handútskorið og svo skreytum við með perlum en það eru ekki margar eins. Á sum landakortin er búið að krota, sem okkur finnst bara aðlaðandi og ef fólk er hrifið af þessu þá er það bara bónus.“ 

Nafnið á netversluninni er komið frá fjalli í Arnarfirði sem stendur fyrir ofan bæinn þar sem faðir þeirra fæddist. Margrét segir fjallið Skeggja standa sterkt eins og hnífsblað og hafi nafnið mikla merkingu fyrir þær systur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.