Leikjavísir

CNN með innslag um Quiz Up

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bandaríska fréttasjónvarpsstöðin CNN var með nokkuð ítarlega fréttaskýringu um tölvuleikinn Quiz Up sem er vinsælasta appið í heiminum í dag.

Íslenska fyrirtækið Plain Vanilla framleiðir Quiz Up og hefur leikurinn vaxið á gríðar hraða undanfarna tíu daga.

Það tók Quiz Up aðeins nokkra daga að  ná yfir milljón notendum sem er betri árangur en allir  stærstu samskiptamiðlarnir í heiminum í dag.

Að meðaltali hafa 120 þúsund manns halað leiknum niður dag hvern síðan hann kom út.

Hér að neðan má horfa á innslag sem CNN gerði um þennan magnaða leik.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×