Dómsmál skapa óvissu um útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. apríl 2011 14:10 Landsbanki Íslands. Mynd/ Rósa.
Alls óvíst er hvenær verður nákvæmlega hægt að byrja að greiða út úr þrotabúi Landsbankans. Það er háð því að Hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að innistæður séu forgangskröfur líkt og neyðarlögin gerðu ráð fyrir og að neyðarlögin haldi að öðru leyti. „Það verður ekki hægt að byrja að greiða út úr búinu fyrr en búið er að eyða allri réttaróvissu um forgangskröfur. Það er bara þegar Hæstiréttur hefur fellt sína dóma í þeim ágreiningsefnum sem uppi eru um forgangskröfurnar," segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans. Þar á Páll við smásöluinnlán, sem eru í daglegu tali kölluð Icesave innlán, heildsöluinnlán og um neyðarlögin. „Það er ekki fyrr en búið er að eyða þeirri réttaróvissu að hægt er að byrja að borga út úr búinu," segir Páll. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur þegar kveðið upp dóm um að heildsöluinnlánin væru forgangskröfur. Samkvæmt þeim dómi standast neyðarlögin stjórnarskrá. Þeim dómi hefur verið áfrýjað. Þá eru dómsmál sem varða smásöluinnlán fyrir héraðsdómi. Samkvæmt heimildum Vísis er ekki útilokað að búið verði að dæma í öllum þessum málum fyrir sumarlok. Páll vill þó ekkert segja til um það. „Bankinn veit ekkert hvenær dómstólarnir klára þessi mál. Það er dómstólanna að segja fyrir um það," segir Páll. Forseti Íslands og oddvitar ríkisstjórnarinnar hafa sagt að gert væri ráð fyrir að útgreiðslur úr þrotabúinu hæfust á þessu ári. Hefur forsetinn í þessu samhengi bent á að um 9 milljarðar bandaríkjadala, eða 1000 milljarða króna, greiðslur kunni að vera að ræða.
Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Innlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Unglingur hrækti á lögreglumann Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Eldur í gömlu sundhöllinni í Keflavík Mannskæður jarðskjálfti og vasaþjófar í dulargervi Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Eins leitað eftir slagsmál Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Kæra skógrækt við Húsavík vegna rasks á varplendi fugla Lokaæfing fyrir almyrkva Vilja að bæjarstjóri lækki laun sín jafn mikið og bæjarfulltrúar Döpur vegna „hetjunnar“ Ástu og „ómaklegrar aðfarar“ RÚV Saka lögregluna um að rægja Kínverja Verður aflífaður eftir allt saman Harðir skjálftar í Asíu og Play til Möltu Lögreglustjóri mun stýra Mannréttindastofnun Vara við þjófum sem dulbúa sig sem ferðamenn Stuðningur við símabann í grunnskólum eykst og mælist 62 prósent Skoða hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfarsárdal Bein útsending: Borgarstjóri ræðir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík Erlendir vasaþjófar herja á Þingvelli og fleiri ferðamannastaði Fimm handteknir vegna líkamsárásar og haldið upp á „alþjóðlega Viagra daginn“ Sólmyrkvi á laugardaginn Harmsögur af stríði, fjöldagrafir og tíðar árásir taka á líkama og sál Sjá meira