Innlent

Eðlilegt að leyfa innflutning á lambakjöt

Mörður Árnason.
Mörður Árnason. Mynd/Auðunn Níelsson
Það er ekki hægt að hafa íslenska neytendur í fangamúrum frá evrópskum lambakjötsmarkaði þegar íslenskir bændur eru virkir þáttakendur á honum segir þingmaður Samfylkingarinnar.

Jón Bjarnason, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að hann vildi ekki bjóða út innflutningskvóta á lambakjöti til að standa vörð um íslenska lambakjötsframleiðslu. Þetta hafa meðal annars Samtök verslunar og þjónustu gagnrýnt í bréfi til umboðsmanns Alþingis.

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að nú sé eðlilegt að leyfa innflutning á lambakjöti þar sem verð á erlendum mörkuðum hefur mikil áhrif á verð og framboð á lambakjöti hér á landi.

„Staðan er núna sú að forysta bænda og landbúnaðarráðherra vilja nýta sér kosti frjálsrar verslunar í útlöndum, en koma í veg fyrir að neytendur nýti sér kosti frjálsrar verslunar á Íslandi. Þetta auðvitað gengur ekki og er gamaldags pólitík sem þarf að fara að hætta,“ segir Mörður.

Auka þurfi samkeppnina hér á landi í hag neytenda. „Það á auðvitað ekki að vera lógískt að erlent lambakjöt sé ódýrara en íslenskt lambakjöt. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að það sé þannig, en kannski er það svo að þegar við erum orðin hluti af þessum evrópska markaði í lambakjöt sem að forysta bænda vill vera að þá verður íslenska markaðssvæðið að vera það líka. Það er ekki hægt að hafa Ísland í fangamúrum út af þessu,“ segir Mörður.

Hann telur að innflutningur á lambakjöti myndi ekki stefna innlendri framleiðslu í hættu þar sem bændur séu að fá mjög gott verð á mörkuðum erlendis.

„Er ekki verið að tala um að 40% af lambakjöti sé núna flutt út? Það getur ekki verið að það ógni innlendri framleiðslu ef að menn eru að framleiða fyrir innlendan markað, þá gera innlendir neytendur kröfu um að fá vöruna á því verði sem hægt er á þessum sameiginlega evrópska markaði sem bændur eru núna að nýta sér,“ segir Mörður.




Tengdar fréttir

Kvartað undan landbúnaðarráðherra til umboðsmanns

Miðalda viðskiptahættir með lambakjöt munu leiða til umtalsverðra verðhækkana á næstu mánuðum að mati Samtaka verslunar og þjónustu. Á sama tíma og skortur sé á lambakjöti komi landbúnaðarráðherra í veg fyrir innflutning.

Hægt að ná sínum markmiðum í verðlagsmálum á annan hátt

Aðalsteinn Á. Baldursson, Formaður Framsýnar, undrast yfirlýsingar Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, þar sem hann hvetur neytendur til að sniðganga íslenskt lambakjöt. Hann segir Gylfa ekki þurfa að beita hótunum til að ná sínum markmiðum í verðlagsmálum.

Lambakjöt búið að hækka um 25 prósent

Landssamtök sauðfjárbænda hafa hækkað verðskrá sína um 25 prósent frá síðasta ári. Formaður samtakanna fullyrðir þó að ekki sé sjálfgefið að hækkunin hafi áhrif á íslenska neytendur, og bendir á að verðskráin sé ekki bindandi.

Fólk sniðgangi lambakjöt

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, mótmælir harðlega nýrri viðmiðunarverðskrá Landssambands sauðfjárbænda, en í henni er gert ráð fyrir 25 prósenta hækkun á verði til bænda. Gylfi segir þetta algjörlega úr takti við aðrar hækkanir í samfélaginu og hvetur landsmenn til að mótmæla með því að hætta að kaupa lambakjöt.

Kótelettufélagið: Vanhugsuð ummæli forseta ASÍ

„Þessi vanhugsuðu ummæli hryggja félagsmenn mjög. Forsetinn virðist gleyma því algjörlega að um innlenda framleiðslu er að ræða og íslenskt vinnuafl,“ segir í tilkynningu frá Kótelettufélagi Íslands. Félagsmenn eru afar ósáttir með Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, sem hefur hvatt almenning til að sniðganga lambakjöt vegna nýrrar verðskrár Landssambands sauðfjárbænda, en samkvæmt henni er gert ráð fyrir 25 prósenta hækkun á verði til bænda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×