Innlent

Eina Dalmatíukind landsins

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Á bænum Kaldárholti í Holtum, skammt utan við Hellu, má finna einu Dalmatíukind landsins. Hún er eins og Dalmatíuhundur - öll út í doppum.

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld mun Magnús Hlynur Hreiðarsson heimsækja kindina og eiganda hennar, Guðrúnu Laufeyju Magnúsdóttur fjárbónda á Kaldárholti.

Í fréttinni fáum við líka að sjá lúðóttar kindur hjá Guðrúnu en þá er helmingur andlitsins svartur og hinn  helmingurinn hvítur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×