Innlent

Ekkert nýtt af máli barnsins

Rannsókn á máli fjórtán mánaða stúlkubarns sem var tekið úr barnavagni fyrir utan hjá dagmóður í Reykjanesbæ fyrir hálfri annarri viku hefur engu skilað.

„Það er ekkert nýtt að frétta af því máli. Við höfðum á fáu að byggja og það hefur ekki dugað til að upplýsa málið," segir Jóhannes Jensson hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

Barnið fannst í nærliggjandi garði. Það var hálfafklætt en að öðru leyti amaði ekkert að því og ekkert bendir til þess að frekar hafi verið gengið á rétt þess, eins og Jóhannes segir. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×