Innlent

Ekki ólympíuandinn að selja silfurverðlaunin

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
"Þetta er ekki óþekkt út í hinum stóra heimi en það er þá oft í þágu góðs málefnis,“ segir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ.
"Þetta er ekki óþekkt út í hinum stóra heimi en það er þá oft í þágu góðs málefnis,“ segir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ.
„Þetta er klárlega ekki ólympíuandinn“, segir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, um fréttir af því að íslensk ólympíusilfurmedalía sé til sölu.

Vísir sagði frá því í gær að Safnaramiðstöðin hefði slíkan grip til sölu og virðist því sem einhver liðsmaður íslenska handboltalandsliðsins sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 vilji koma þeim í verð.

Lárus segir sambandið hafa fengið fregnir af sölunni í gærkvöld og muni skoða málið í dag en gerir þó ráð fyrir að þetta sé ekki óheimilt.

„Þetta er ekki óþekkt út í hinum stóra heimi en það er þá oft í þágu góðs málefnis. Mér finnst þetta sorglegt segir Lárus.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×