Innlent

Endurbætur að hefjast á húsakynnum Kvennadeildarinnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Söfnunarféð var afhent formlega í dag og þar mættu þau Bjarney Harðardóttir, formaður Lífs styrktarfélags og Daníel Reynisson, stjórnarmaður í Lífi styrktarfélagi ásamt þeim Rannveigu Rúnarsdóttur, deildarstjóra meðgöngu og sængurkvennadeildar                     Hildir Harðardóttur, yfirlækni Kvennadeildar sem einnig situr í stjórn Lífs styrktarfélags.

Langþráðar endurbætur á húsakynnum Kvennadeildar Landspítalans háskólasjúkrahúss eru að hefjast í krafti þess fjár sem safnaðist í velheppnaðri landssöfnun í byrjun mars síðastliðnum. Það var Líf styrktarfélag kvennadeildarinnar sem stóð fyrir landssöfnuninni en félagið hefur allt frá stofnun haft það að meginmarkmiði sínu að bæta aðbúnað þeirra kvenna sem nota þjónustu deildarinnar.

Alls söfnuðust rösklega 62 milljónir í landssöfnuninni og nú þegar hefur verið afráðið að verja 40 milljónum í gagngerar endurbætur á meðgöngu-og sængurkvennadeild.  Framkvæmdir hefjast á næstu vikum og er ráðgert að þeim ljúki í október á þessu ári.  Ákvörðun um enn frekari framkvæmdir fyrir andvirði söfnunarinnar verður tekin innan tíðar. Framlög eru enn að berast í söfnunina og því liggur ekki ljóst fyrir hver heildarupphæð hennar verður.

Söfnunarféð var afhent formlega fyrr í dag. Í fréttatilkynningu vegna þess segir að einstök ánægja ríki meðal stjórnar Lífs og framkvæmdastjórnar Landspítalans um hversu fljótt hægt er að hefja og klára framkvæmdir og vill Líf styrktarfélag koma sérstökum þökkum til allra þeirra sem gáfu í landssöfnunina.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×