Innlent

Engar alvarlegar athugasemdir við tillögur stjórnlagaráðs

Höskuldur Kári Schram skrifar
Sérfræðingahópur sem hefur farið yfir tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá gerir ekki alvarlega athugasemdir við tillögurnar.

Hópurinn skilaði niðurstöðum sínum til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag. Formaður nefndarinnar vonast til þess að hægt verði að leggja fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá í næstu viku.

Sérfræðingahópurinn kynnti niðurstöðu sína fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag en fundurinn var opinn fjölmiðlum.

Hópnum var meðal annars gert að fara yfir tillögu stjórnlagaráðs út frá lagatæknilegum forsendum.

hópurinn gerði ekki alvarlega athugasemdir við tillöguna en lagði fram ýmsar breytingar á orðalagi einstakra greina. Þá var ennfremur lagt til að ákvæði um þjóðkirkju skyldi áfram vera í stjórnarskrá í samræmi við niðurstöðu ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að tillögurnar hafi með þessu staðist ákveðið álagspróf. Hún vonast til þess að frumvarp að nýrri stjórnarskrá verði lagt fram í byrjun næstu viku.

„Sérfræðingahópurinn hefur tekið á mannréttindakaflanum em hefur veirð mikið gagnrýndur og færir hann í það horf sem að þau telja að hann þurfi að vera. Þau taka tillit til réttarverndar samkvæmt núgildandi stjórnarskrá, annars halda þau sig alveg við tillögu stjórnlagaráðsins enda var það eitt sem að þau höfðu að leiðarljósi, að virða þeirra vinnu," segir Valgerður.

Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefndinni, segir að sérfræðingahópurinn hafi starfað eftir þröngu umboði meirihlutans í nefndinni. Hópurinn hafi hins vegar lagt fram athugasemdir við frumvarpið í sérstöku skilabréfi.

„Fyrst og fremst benda lögfræðingarnir á að það hefur ekki farið fram heilstætt mat á því hvaða áhrif breytingarnar munu hafa," segir Birgir. „Það hefur ekki verið metið hvaða áhrif breytingarnar á mannréttindakaflanum munu hafa, breytingarnar á forsetaembættinu hafa, breytingar á alþingi, og alþingiskosningum og svo framvegis og svo framvegi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×