Innlent

Enginn skóli á Kjalarnesi - foreldrar í öðrum hverfum meti aðstæður

Skólahald fellur niður í Klébergsskóla á Kjalarnesi í dag vegna óveðurs, foreldrar í öðrum hverfum eru hvattir til að meta aðstæður áður en þeir senda börn sín af stað í skólann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fræðslustjóranum í Reykjavík og ennfremur segir að í öðrum hverfum borgarinnar sé mikilvægt að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni, enda geti veður þróast með ófyrirséðum hætti og aðstæður verið mjög mismunandi eftir svæðum.

„Röskun getur orðið á skólastarfi vegna óveðurs ef starfsfólk á erfitt með að komast í skóla. Við þessar aðstæður eru skólar engu að síður opnaðir og taka á móti nemendum og þeir geta dvalið þar á meðan skipulagt skólahald á að fara fram. Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgi börnum til skóla og yfirgefi þau alls ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks," segir einnig í tilkynningunni og því bætt við, að meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.

„Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa."

Foreldrum er bent á frekari upplýsingar um viðbragðsáætlun vegna röskunar á skólastarfi á heimasíðu Menntasviðs; menntasvid.is/röskun á skólastarfi





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×