Er rólegri en vill ekki borða 8. nóvember 2010 06:30 Úthafskópurinn Golli ásamt fóstra sínum, Georg Skæringssyni, sem hefur annast hann eftir að hann kom til Eyja .mynd/óskar friðriksson
Útselskópurinn Golli sem gekk á land við beituskúr í Breiðdalsvík í síðustu viku er kominn til Vestmannaeyja þar sem starfsmenn á Fiska- og náttúrugripasafninu fóstra hann. Kópurinn er ungur, enn á mjólkurstigi, og verður í Eyjum þar til hann er orðinn nógu stór til að vera sleppt á haf út. „Hann hefur það ágætt greyið þannig séð en er tregur til að borða og það er erfitt að koma fæðu ofan í hann þar sem hann er nautsterkur,“ segir Georg Skæringsson, starfsmaður safnsins og „fósturmamma“ Golla í Vestmannaeyjum. Stappaður fiskur, blandaður með rjóma og eggjum og slurk af lýsi er settur í sprautu sem Georg segir að sé ærið verk að koma ofan í hann. „Hann geispaði áðan og þá gat ég komið einhverri hálfri sprautu upp í hann en annars vill hann ekki sjá fóðrið. Það er hins vegar ekkert annað í boði en að halda áfram að reyna að gefa honum að borða til að gera hann tilbúinn fyrir að fara út á sjó síðar meir. Við vitum ekki hversu langur tími það verður, enda fylgdi ekkert fæðingarvottorð með honum.“ Kópurinn gerði vart við sig á Breiðdalsvík með gráti og Georg segir að Golli hafi grátið mikið fyrst eftir að hann kom en sé orðinn rólegri. „Ég má klóra honum núna og klappa og það er mikill munur á honum en það væri óskandi að hann vildi borða.“ - jma
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Samstarf um farsímasjónvarp Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira