Innlent

Erlendur ferðamaður á 150 km hraða

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Erlendur ferðamaður var stöðvaður af lögreglunni á Suðurnesjum á Reykjanesbraut í vikunni en hann mældist á um 150 kílómetra hraða. Hámarkshraði á Reykjanesbrautinni er 90 kílómetrar á klukkustund.

Alls kærði lögreglan á Suðurnesjum ellefu ökumenn fyrir of hraðann akstur í vikunni. Tólf ökumenn til viðbótar gerðust brotlegir við umferðarlög með öðrum hætti.

Níu ökumenn lögðu bifreiðum sínum ólöglega, flestir uppi á gangstétt. Þá virtu tveir ekki stöðvunarskyldu og einn talaði í farsíma meðan hann ók, án þess að nota handfrjálsan búnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×