ESB, IPA, BHM OG BSRB

Fréttablaðið Aðsendar greinar 31. janúar 2012 06:00
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
Ögmundur Jónasson skrifar:
Þegar Alþingi Íslendinga samþykkti að gengið skyldi til viðræðna við Evrópusambandið um mögulega aðild Íslands að sambandinu stóðu mörg okkar í þeirri trú að það yrði tiltölulega einfalt ferli, enda Ísland þegar þátttakandi í EES-samstarfinu og þar með innri markaði ESB. Fyrirmyndina var að finna frá viðræðum ESB og Noregs í upphafi 10. áratugar síðustu aldar. En annað kom á daginn. Aðildarumsókn Íslands skyldi tekin sömu tökum og umsóknir frá ríkjum A-Evrópu, sem ekki hafa tekið þátt í þessu Evrópusamstarfi. Fyrir vikið hefur ferlið tekið lengri tíma með ítarlegri rýnivinnu og kröfum um aðlögun sem á ekkert skylt við samningaviðræður. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að þessu sé hægt að breyta og eigi að breyta; að við eigum að gera kröfu um að hraða því að fá efnislega niðurstöðu í þessu ferli og kjósa um hana af eða á.


IPA: Njóta nú, borga síðar
Í þessu ferli hafa meðal annars verið boðnir svokallaðir IPA styrkir. Skammstöfunin stendur fyrir Instrument for pre-accession assistance, aðstoð í aðdraganda aðildar. Ekki er hægt að alhæfa um alla þessa styrki, en samkomulag varð um það í ríkisstjórn að hafna styrkjum sem beinlínis eru vegna aðlögunar að ESB-aðild. Enginn gekk að því gruflandi að slíkt gæti orðið umdeilt á tímum þegar þröngt er í búi. Nokkuð held ég að skorti á skilning á eðli þessara styrkja, en með þeim er ríkjum í umsóknarferli veittur aðgangur að fjármunum sem virðast koma af himnum ofan.

Að sjálfsögðu borga skattgreiðendur í ríkjum Evrópusambandsins hvern einasta styrk. Það kæmum við einnig til með að gera ef við yrðum aðilar að sambandinu. Nokkuð hef ég saknað þess að verkalýðshreyfingin, atvinnurekendasamtökin og fjölmiðlar yrðu kraftmeiri og gagnrýnni í umfjöllun um Evrópusambandsferlið. Þó hefur þetta ekki komið mér mikið á óvart. Nákvæmlega hið sama hefur gerst nánast alls staðar í ríkjum Evrópusambandsins þegar ágreiningur hefur verið uppi: Hinn stofnanavæddi hluti samfélagsins, stofnanakerfið – verkalýðshreyfing, atvinnurekendasamtök, fjölmiðlar, lykilaðilar í stjórnsýslu og oft hlutar af háskólasamfélaginu - hefur verið á sama báti og ESB-kerfið. Skýr dæmi um þetta eru atkvæðagreiðslan um Maastricht sáttmálann í Danmörku á sínum tíma, kosningarnar í Frakklandi og Hollandi um stjórnarskrársáttmálann og átökin í Noregi um aðild.


Hafa þau séð ljósið?
Hvernig skyldi standa á þessu? Er það vegna þess að þeir aðilar sem starfa innan stofnanaveldisins sjái ljósið öðrum fremur; það sé þekkingin sem valdi afstöðu þeirra? Eða gæti hitt átt við að þeir séu orðnir hluti af nýju samfélagi með endalausum fundaferðum þar sem setið er yfir sameiginlegum viðfangsefnum í sameiginlegum heimi – fjarri þeim heimi sem þeir eru fulltrúar fyrir.

Sjálfur þekki ég þennan heim vel eftir ótölulega fundi sem ég hef sótt sem stjórnmálamaður en ekki síður sem forsvarsmaður í verkalýðssamtökum um áratuga skeið. Oft voru þetta árangursríkir og góðir fundir, stundum síður eins og gerist og gengur.


Þykir miður
Mörgum sem sækja þurfa fundi milli landa þykir það án efa leiðigjarnt og vildu heldur sleppa við langa fjarveru frá heimili sínu. Þetta er fólkið sem mér þykir miður að hafa sært þegar ég ræddi þá tilhneigingu sem við höfum séð í öðrum Evrópuríkjum að stofnanaveldið eigi til að ánetjast Evrópusambandinu. Með þessu gerði ég einstaklingum það upp að eiga sér þann draum helstan að halda til á hótelum á kostnað skattgreiðenda. Þetta var ómaklegt og ósanngjarnt og bið ég þetta fólk afsökunar. Sjálfur er ég nýlega búinn að halda uppi stífum vörnum og útskýringum á eðli dagpeninga; að þeir séu hugsaðir til að greiða útlagðan kostnað og ekki annað. Síðan er það hin hliðin að það kemur úr hörðustu átt þegar stjórnmálamaður sem er ábyrgur fyrir því að senda fólk til verka á erlendri grundu talar til þess með þeim hætti sem ég gerði.

En á móti vil ég biðja fólk að skilja hina eiginlegu þungamiðju í minni gagnrýni. Hún er sú að hvort sem eiga í hlut ríki, samtök eða fyrirtæki sem vilja vinna einstaklinga, hópa eða heil samfélög á sitt band, þá ástunda þau gjarnan markvisst að ánetja lykilaðila með margvíslegum strokum og velgjörðum. Evrópusambandið er sérstaklega bíræfið í þessu efni. Langt er síðan að þar á bæ var hafist handa um að bjóða hópum í „menntunarferðir" til Brussel og það er staðreynd að það getur orðið vandamál hvort sem er á Íslandi eða í Króatíu þegar hópur lykilfólks er hafður í bómull þar sem dekrað er við hann í hvívetna; til verða vinir og lífsvenjur sem verða mönnum kærar og eftirsóknarverðar.


Hin kæfandi ást
Heildarsamtök opinberra starfsmanna, BSRB og BHM ályktuðu eftir umræðu á Alþingi þar sem ég var spurður um IPA styrki í óundirbúnum fyrirspurnum og lét þá ofangreind ummæli falla, bæði um IPA og einnig í lokin, í framhjáhlaupi, um meinta gleði fundaferðalanga. Fróðlegt væri að heyra álit þessara samtaka á IPA styrkjunum, og þá einnig og ekki síður, hvort samtökin telja að fyrirvarar í aðildarviðræðum varðandi almannaþjónustuna og réttindi launafólks séu viðunandi, hvort við stöndum betur eða ver að vígi til varnar almannaþjónustunni í viðræðum við Alþjóðaviðskiptastofnunina innan eða utan ESB og fleira mætti telja sem fellur sérstaklega undir svið þessara samtaka.

Fram hefur komið að bæði BHM og BSRB eru harmi slegin vegna yfirlýsinga minna og sáu ástæðu til tilfinningaríkari viðbragða en ég minnist á undangengnum niðurskurðarárum. En harmurinn sefast vonandi með þessum orðum mínum og skýringum á því hvers vegna ég tel það mikilvægt að ræða þá hættu að stofnanakerfið ánetjist Evrópusambandinu í kæfandi ástaratlotum þess.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / ESB, IPA, BHM OG BSRB